Ferill 550. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1062  —  550. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur
um embættismenn.


     1.      Hver er heildarfjöldi embættismanna, að undanskildum tollvörðum, sem starfa hjá ráðuneytinu og stofnunum þess?
    
Heildarfjöldi embættismanna sem starfa í ráðuneytinu og stofnunum þess er 22.

     2.      Skipan hve margra þeirra rennur út á þessu ári og skipan hve margra á ári hverju 2017–2020?

    Engin skipan rennur út á þessu ári. Skipanir fjögurra embættismanna renna út árið 2017, fimm árið 2018, fjögurra árið 2019 og fjögurra árið 2020.
    Setning eins embættismanns rennur út á þessu ári. Tveir embættismenn voru skipaðir fyrir 1997 og eru með ótímabundna skipan samkvæmt þágildandi lögum. Tveir embættismenn eru ráðnir af stjórn en ekki skipaðir af ráðherra, þ.e. forstjórar Bankasýslu ríkisins og Fjármálaeftirlitsins.

     3.      Hve margir embættismenn eru á þessu ári 60–64 ára, 65–66 ára og 67–69 ára og hve margir verða 70 ára á næsta ári?
    Sjö embættismenn eru á aldrinum 60–64 ára, tveir eru á aldrinum 65–66 ára og einn er á aldursbilinu 67–69 ára.

     4.      Hve margir embættismenn starfa sem skrifstofustjórar innan ráðuneytisins án mannaforráða?

    Einn skrifstofustjóri starfar innan ráðuneytisins án mannaforráða.