Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1078  —  651. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um starfsemi heilbrigðisstofnana.


Flm.: Vilhjálmur Árnason.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp sem fari yfir fjárhagsstöðu og rekstrarhæfi heilbrigðisstofnana á landinu og kanni hvernig hægt sé að efla starfsemi þeirra. Starfshópurinn skilgreini í fyrsta lagi hvað sé hátækniþjónusta og hvað sé æskilegast að þjónusta innan veggja hátæknisjúkrahúss. Í öðru lagi skilgreini starfshópurinn hvaða þjónustu sé hægt að veita utan hátæknisjúkrahúss og meti hvaða aðstöðu, aðstæður og möguleika aðrar heilbrigðisstofnanir hafa til að sinna t.d. fæðingarþjónustu, endurhæfingu, eftirmeðferðum, krabbameinsmeðferðum, þjónustu við fólk með taugasjúkdóma o.fl. Í þriðja og síðasta lagi kanni starfshópurinn stöðu utanspítalaþjónustu og meti þörfina fyrir slíka þjónustu vegna breyttrar heilbrigðisþjónustu og fjölgunar íbúa og ferðamanna um land allt.

Greinargerð.

    Nú þegar rofar til í efnahagsmálum þjóðarinnar og endurreisn heilbrigðiskerfisins er hafin á ný er rétt að staldra við og velta fyrir sér hvernig sú uppbygging megi verða svo hún þjóni þörfum sem flestra og á sem hagkvæmastan hátt. Því hyggst heilbrigðisráðherra leggja fram heilbrigðisáætlun til ársins 2022 á haustþingi 2016. Þegar slík áætlun er í vinnslu og unnið er að framkvæmd hennar skiptir miklu að hafa sem flestar upplýsingar aðgengilegar. Því er lagt til í þingsályktunartillögu þessari að gerð sé greining á nokkrum þáttum sem tengjast samspili heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og hátæknisjúkrahúss landsins og því hvernig reka megi öfluga heilbrigðisþjónustu um land allt. Það veltur mikið á að þetta samspil gangi vel fyrir sig hvað varðar þjónustu og öryggi við íbúa og gesti á landsbyggðinni, að fjármunir ríkissjóðs séu nýttir sem best og að öll heilbrigðisþjónusta sé ekki undir einu og sama þakinu sem getur skapað ýmsa hættu.
    Heilbrigðiskerfið hefur lengi þurft að búa við hagræðingarkröfu af hálfu ríkisins og svo beinan niðurskurð við efnahagshrunið árið 2008. Samhliða þessu hefur aukin þörf skapast í kerfinu með auknu álagi samhliða fjölgun íbúa og gesta í landinu. Þá hefur mikill samdráttur í þjónustu orðið á sama tíma vegna aukinnar sérhæfingar, hagræðingaraðgerða og minna framboðs af sérmenntuðu starfsfólki. Það hefur sést á fækkun fæðingarstaða, lokun skurðstofa og annarri almennri þjónustu. Hinn 1. október 2014 lauk svo sameiningum heilbrigðisumdæma. Sameiningin sneri að stofnunum í þremur umdæmum, þ.e. heilbrigðisumdæmum Norðurlands, Suðurlands og Vestfjarða og fækkaði yfirstjórnum heilbrigðisstofnana í þessum umdæmum þar með úr ellefu í þrjár. Ein heilbrigðisstofnun er nú í hverju heilbrigðisumdæmi landsins þótt starfsstöðvar séu víða í hverju umdæmi. Markmiðið með sameiningunni var að nýta samlegðaráhrif til að efla heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi undir stjórn einnar faglegrar og fjárhagslega sterkrar stofnunar.
    Þessar breytingar og þróun hafa aukið þörf á meiri og sérhæfðari utanspítalaþjónustu en einnig skapað tækifæri til að auka samstarf utanspítalaþjónustunnar við aðra starfsemi heilbrigðisstofnana. Þá skal þess getið að starfshópur er að störfum sem fjallar um fjarheilbrigðisþjónustu. Fjarheilbrigðisþjónusta er einn liður í því að ná því markmiði sem þingsályktunartillaga þessi stefnir að.
    Það felast því mikil verðmæti í því að kanna hvernig nýta megi betur þá fjárfestingu sem landsmenn eiga um land allt í húsnæði og aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustu og hvernig innviðirnir verði nýttir og styrktir til að takast á við aukin verkefni samhliða fjölgun íbúa, ferðamanna og aukinnar atvinnustarfsemi um land allt. Þá hefur mikið verið til umræðu það mikla álag sem er á hátæknisjúkrahúsinu. Þar eru vafalaust fjöldi verkefna sem má sinna annars staðar og þannig yrði um leið dregið úr álagi á Landspítalanum. Þjónustan yrði í mörgum tilfellum veitt nær heimahögum sjúklinga og oft og tíðum í heilbrigðara um­hverfi. Þar má nefna t.d. fæðingarþjónustu, endurhæfingu, ýmsar eftirmeðferðir, krabbameinsmeðferðir, þjónustu við fólk með taugasjúkdóma o.fl.
    Þetta er mikilvægt verkefni og takist það vel mun traust og sátt um heilbrigðiskerfið aukast.