Ferill 710. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1150  —  710. mál.




Fyrirspurn


til um­hverfis- og auðlindaráðherra um flutning verkefna til sýslumannsembætta.

Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.


     1.      Hvernig miðar flutningi verkefna frá ráðuneytinu til sýslumannsembætta samkvæmt aðgerðaáætlun um flutning verkefna til embætta sýslumanna sem gerð var samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 50/2014?
     2.      Telur ráðherra unnt að flytja önnur verkefni úr ráðuneytinu til sýslumannsembætta en þau sem tiltekin eru í fyrrgreindri aðgerðaáætlun?
     3.      Hvaða aðferðum er beitt við ákvörðun um að flytja verkefni til sýslumannsembættis og hvað kemur einkum í veg fyrir flutning?


Skriflegt svar óskast.