Ferill 591. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1172  —  591. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.


     1.      Er stefnt að auknum einkarekstri í heilbrigðisþjónustu og ef svo er, á hvaða sviðum?
    Ráðherra stefnir ekki að auknum einkarekstri í heilbrigðisþjónustu umfram það sem tilkynnt hefur verið að rekstraraðilum heilsugæslu á höfuð­borgar­svæðinu verði fjölgað um þrjá á þessu ári. Sjúkratryggingum Íslands hefur verið falið að auglýsa eftir rekstraraðilum sem munu veita þjónustu í samræmi við kröfulýsingu sem unnin hefur verið í velferðarráðuneytinu. Í kröfulýsingunni er m.a. krafa um að rekstur heilsugæslustöðvar verði annaðhvort á hendi opinberrar stofnunar eða félags í meirihlutaeigu heilbrigðisstarfsmanna sem stofnað verði um rekstur viðkomandi stöðvar.

     2.      Telur ráðherra að réttindi sjúklinga sem nýta sér einkarekna heilbrigðisþjónustu séu nægilega trygg með tilliti til mistaka sem kunna að verða?
    Réttindi sjúklinga, sem nýta sér einkarekna heilbrigðisþjónustu, eru tryggð með sama hætti og þeirra sem nýta sér opinbera heilbrigðisþjónustu. Vísast þar einkum til laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000.

     3.      Hvernig er háttað kröfum um tryggingar þeirra sem starfrækja einkarekna heilbrigðisþjónustu? Telur ráðherra nægilega tryggt að heilsufarstjón sem fólk kann að verða fyrir vegna mistaka í einkarekinni heilbrigðisþjónustu verði ekki til að valda kostnaði í opinbera heilbrigðiskerfinu?
    Tryggingar þeirra sem starfrækja einkarekna heilbrigðisþjónustu eru sambærilegar tryggingum þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu á vegum hins opinbera, sbr. 25. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, en þar kemur fram að heilbrigðisstarfsmenn sem starfa sjálfstætt og fyrirtækjum sem veita heilbrigðisþjónustu er skylt að hafa vátryggingu sem uppfyllir skilyrði laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000.

     4.      Sér ráðherra fyrir sér breytingar á rekstrarum­hverfi einkarekinnar heilbrigðisþjónustu í þá veru að markaðsstarf aukist, t.d. með auglýsingum á verðskrám, tilboðum o.þ.h.?
    Ráðherra hefur ekki í hyggju að beita sér fyrir breytingum á rekstrarum­hverfi einkarekinnar heilbrigðisþjónustu. Rekstrarum­hverfi einkarekinnar heilbrigðisþjónustu breytist væntanlega í takt við þarfir notenda í samræmi við samninga og reglur sem gilda hverju sinni.