Ferill 569. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1176  —  569. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um flugvelli og framkvæmdir.


     1.      Hversu mikið fé var veitt til flugvalla í fjárlögum fyrir árið 2016? En í fjárlögum fyrir árið 2015? Svar óskast sundurliðað eftir flugvöllum.
    Fjárveiting ríkisins til flugvalla er í fjárlagalið „06-672 Flugvellir og flugleiðsöguþjónusta“. Upphæð liðarins er í einni tölu en ekki sundurliðuð. Upphæð fjárlagaliðarins árið 2015 var 2.032,3 millj. kr. en 1.915,8 millj. kr. fyrir árið 2016.
    Í þjónustusamningi milli innanríkisráðuneytisins og Isavia ohf. er fjárveitingu ríkisins skipt í viðhalds- og nýframkvæmdir annars vegar og rekstur flugvalla hins vegar. Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu á fjárhæðum í samningnum árið 2015. Til skýringar á liðum „Aðrir lendingarstaðir umdæmi 1“ í töflunni er rétt að taka fram að umdæmi 1 nær frá Fagurhólsmýri til Vestfjarða, umdæmi 2 nær yfir Vestfirði, umdæmi 3 nær frá Hrútafirði í vestri til og með Langanesi í austri og umdæmi 4 nær frá Langanesi, í raun frá Vopnafirði, til Fagurhólsmýrar. Þá er rétt að taka fram til glöggvunar að undir línuheitinu „þriðjulandaleit“ er átt við leit á farþegum sem koma frá löndum þar sem ekki er í gildi samkomulag um gagnkvæma viðurkenningu á flugverndarráðstöfunum.

Flugvöllur/deild Rekstur Framkvæmdir
Reykjavíkurflugvöllur 263.400.755 40.450.000
Akureyrarflugvöllur 419.845.106 79.023.000
Egilsstaðaflugvöllur 273.309.215 33.200.000
Ísa­fjarðarflugvöllur 78.537.135 900.000
Vestmannaeyjaflugvöllur 83.249.350 13.100.000
Bíldudalsflugvöllur 21.892.221 5.700.000
Gjögurflugvöllur 14.922.059 157.800.000
Húsa­víkurflugvöllur 28.764.228 33.890.000
Þórshafnarflugvöllur 14.725.712 2.850.000
Grímseyjarflugvöllur 20.812.344 18.900.000
Horna­fjarðarflugvöllur 19.928.801 11.550.000
Vopna­fjarðarflugvöllur 23.462.960 118.230.000
Sauðárkróksflugvöllur 9.817.137 800.000
Norð­fjarðarflugvöllur 5.104.910 5.607.000
Þingeyrarflugvöllur 5.890.285 3.000.000
Bakkaflugvöllur 2.846.975
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 1 11.976.916
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 2 2.552.461
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 3 8.246.399
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 4 785.375
Sam­eig­in­leg­ur kostn­aður inn­an­lands­flugv. 19.356.136
Umsjón með framkvæmdum 14.800.000
Upplýsingaþjónusta flugmála 30.482.224
Þriðjulandaleit Keflavíkurflugvöllur 36.437.302
Ríkisflug – Keflavíkurflugvöllur 96.153.994
Samtals 1.507.300.000 525.000.000

    Ekki hefur verið lokið við gerð þjónustusamnings fyrir 2016 og því hefur upphæð samningsins ekki verið skipt. Tillaga hefur verið gerð að eftirfarandi skiptingu:

Flugvöllur/deild Rekstur Framkvæmdir
Reykjavíkurflugvöllur 297.164.548 0
Akureyrarflugvöllur 444.024.507 10.000.000
Egilsstaðaflugvöllur 320.300.004 0
Ísa­fjarðarflugvöllur 83.500.000 0
Vestmannaeyjaflugvöllur 96.300.000 0
Bíldudalsflugvöllur 29.200.000 0
Gjögurflugvöllur 17.200.000 0
Húsa­víkurflugvöllur 39.300.000 199.700.000
Þórshafnarflugvöllur 15.700.000 0
Grímseyjarflugvöllur 26.300.004 0
Horna­fjarðarflugvöllur 24.300.000 0
Vopna­fjarðarflugvöllur 27.400.000 0
Sauðárkróksflugvöllur 8.900.004 0
Norð­fjarðarflugvöllur 5.600.004 80.000.000
Þingeyrarflugvöllur 4.500.000 0
Bakkaflugvöllur 4.300.000 0
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 1 14.800.000 0
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 2 2.400.000 0
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 3 7.000.000 0
Aðrir lendingarstaðir umdæmi 4 930.000 0
Sam­eig­in­leg­ur kostn­aður inn­an­lands­flugv. 17.685.929 0
Upplýsingaþjónusta flugmála 31.050.000 0
Ríkisflug – Keflavíkurflugvöllur 97.945.000
Ýmis brýn verkefni 10.300.000
Samtals 1.615.800.000 300.000.000

     2.      Í hvað hefur það fé verið notað, sundurliðað eftir flugvöllum?
    Það fjármagn sem ætlað var til reksturs flugvalla árið 2015 hefur allt verið notað samkvæmt áætlun. Á eftirfarandi yfirliti yfir framkvæmdir á flugvöllum árið 2015 má sjá heildarupphæð framkvæmda á árinu en auk fjárveitinga frá ríkinu vegna síðastliðins árs var einnig notað fjármagn frá fyrri árum. Framkvæmdatímabil vegna einstakra verkefna fylgir oft ekki almanaksárum.

Flugvöllur/deild Framkvæmdir
Reykjavíkurflugvöllur 27.640.942
Akureyrarflugvöllur 26.247.585
Egilsstaðaflugvöllur 29.108.888
Ísa­fjarðarflugvöllur 1.555.158
Vestmannaeyjaflugvöllur 10.899.282
Bíldudalsflugvöllur 896.265
Gjögurflugvöllur 139.859.875
Húsa­víkurflugvöllur 11.462.795
Grímseyjarflugvöllur 1.730.120
Horna­fjarðarflugvöllur 2.914.273
Vopna­fjarðarflugvöllur 98.446.693
Sauðárkróksflugvöllur 494.873
Norð­fjarðarflugvöllur 1.206.530
Þingeyrarflugvöllur 1.712.676
Samtals 354.175.955

     3.      Hvaða framkvæmdum er lokið, við hvaða framkvæmdir er enn unnið og hverjar bíða, sundurliðað eftir flugvöllum?
    Eftirfarandi tafla sýnir umfang verkefna í krónum sem áætluð voru og unnið var að á árinu 2015.

Verkefni hafið
Flugvöllur/deild Lokið Bókað 2015 Áætlaður viðbótarkostn. Ekki hafið
Reykjavíkurflugvöllur 13.536.335 14.104.607 21.742.682
Akureyrarflugvöllur 26.068.825 178.760 12.221.240 55.000.000
Egilsstaðaflugvöllur 9.823.601 19.285.287 6.800.779 8.600.000
Ísa­fjarðarflugvöllur 1.555.158
Vestmannaeyjaflugvöllur 5.268.077 5.631.205 2.535.425 2.000.000
Bíldudalsflugvöllur 896.265 4.900.000
Gjögurflugvöllur 325.000 139.534.875 15.169.744 2.850.000
Húsa­víkurflugvöllur 11.462.795 13.727.205 8.700.000
Þórshafnarflugvöllur 2.850.000
Grímseyjarflugvöllur 947.478 782.642 2.293.489 17.400.000
Horna­fjarðarflugvöllur 2.734.705 179.568 10.820.432
Vopna­fjarðarflugvöllur 34.144.121 64.302.572 20.397.428 3.300.000
Sauðárkróksflugvöllur 494.873
Norð­fjarðarflugvöllur 1.206.530 4.400.000
Þingeyrarflugvöllur 1.712.676 1.287.324
Samtals 97.000.968 257.174.987 106.995.748 110.000.000

    Lokið var við verkefni að upphæð 97 millj. kr. á árinu 2015. Til viðbótar því var hafin vinna við verkefni en áætlaður heildarkostn­aður við þau var 364 millj. kr. Af ýmsum ástæðum var ekki lokið við þau verkefni að fullu á árinu 2015. Stærstu verkefnin sem hér vísast til er endurnýjun raflagna og ljósabúnaðar á Gjögri og Vopnafirði en þar er stærstum hluta verkefnanna lokið, ein­göngu frágangur á stýringum er eftir.
    Í árslok 2015 lágu ekki fyrir tölur vegna áætlaðra verkefna að heildarupphæð 110 millj. kr. og var það að hluta til vegna þess að ekki hafði verið hafist handa við þau á árinu. Helstu verkefnin sem hér um ræðir er móttaka efnis úr Vaðlaheiðar­göngum vegna væntanlegrar stækkunar flughlaðs á Akureyri og kaup á veðurbúnaði. Vegna aðstæðna í Vaðlaheiðar­göngum var ekki mögulegt að flytja efni þaðan fyrr en í ársbyrjun 2016 og nýi veðurbúnaðurinn var í pöntun um áramót.

     4.      Hversu margir flugvellir hafa verið mjókkaðir eða stendur til að mjókka með fyrirhuguðum framkvæmdum?
    Engar flug­brautir hafa verið mjókkaðar síðastliðin 10 ár og ekki stendur til að gera breytingar þar á. Á hinn bóginn hafa flug­brautarljós, sem voru of langt frá flug­brautarbrún, í einhverjum tilvikum verið færð nær brún. Það hefur verið gert til samræmis við gildandi reglur en samkvæmt reglugerð eiga flug­brautarljós að vera innan við þrjá metra frá flug­brautarbrún.