Ferill 530. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1189  —  530. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur um samninga um heilbrigðisþjónustu.


     1.      Hve margir samningar um heilbrigðisþjónustu skv. 28. gr. laga um heilbrigðisþjónustu hafa verið gerðir frá 2007? Óskað er eftir upplýsingum um umfang og inntak samninga, samningsaðila og gildistíma samninga.
    Í meðfylgjandi töflu eru samningar sem í gildi eru við einkaaðila, sjálfseignarstofnanir og stofnanir sem falla undir undir önnur ráðuneyti en velferðarráðuneyti um heilbrigðisþjónustu og nú er unnið eftir. Á listanum eru bæði samningar við tilgreinda samningsaðila og rammasamningar sem fjöldi sjálfstætt starfandi heilbrigðsstarfsmanna eru aðilar að og má þar nefna sérgreinalækna og sjúkraþjálfara. Allir samningarnir hafa verið endurnýjaðir reglulega frá árinu 2007 og flestir verið í gildi allan þann tíma sem spurt er um. Listinn nær ekki til samninga við hjúkrunarheimili en nú er unnið að heildstæðri samningsgerð um þjónustu hjúkrunarheimila og er þess vænst að þeirri vinnu ljúki á þessu ári. Kostn­aður í meðfylgjandi töflu miðast við fjárlög 2016 þegar einn samningur fellur undir fjárlaganúmer en miðað er við kostnað samkvæmt bókhaldi 2015 þegar fleiri samningar falla undir fjárlaganúmer þar sem sérgreind fjárhæð vegna 2016 liggur ekki fyrir í aðgengilegum gögnum.

Kostn­aður Flokkun Viðsemjendur Tegund þjónustu
106,1 Áfengismeðferð Meðferðarheimilið í Krýsuvík Langtímaáfengis- og vímuefnameðferð
854,7 Áfengismeðferð SÁÁ Áfengis- og vímuefnameðferð á Vogi og dagdeildum
41,6 Endurhæfing Þraut ehf. Endurhæfing fyrir einstaklinga með vefjagigt
8,2 Endurhæfing HL-stöðin á Akureyri Samningur um endurhæfingu og þjálfun
40,6 Endurhæfing HL-stöðin í Reykjavík Samningur um endurhæfingu og þjálfun
1729,3 Endurhæfing Reykjalundur/Hlein Endurhæfing á Reykjalundi
221,2 Endurhæfing Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Sjúkra- og iðjuþjálfun barna og ungmenna
656,6 Endurhæfing Náttúrulækningafélag Íslands Þverfaglega endurhæfing
53,3 Heimahjúkrun Heimahlynning Líknandi hjúkrunarmeðferð í heimahúsum
88,1 Heimahjúkrun Karitas Sérhæfð líknandi hjúkrunarmeðferð í heimahúsum
65,4
Heimahjúkrun
Heilsueflingarmiðstöðin
Sérhæfð hjúkrunarmeðferð fyrir alvarlega langveik börn
1319,4 Heimahjúkrun Reykjavíkurborg Þjónustusamningur um hjúkrun í heimahúsum
17,0
Heimilislækningar
Heimilislæknastöðin
Heilbrigðisþjónusta í fangelsum á Reykjavíkursvæðinu
376,4 Heimilislækningar Læknavaktin Móttökuvakt og vitjanir heimilislækna
225,0 Heimilislækningar Heimilislæknastöðin Rekstur heilsugæslu í Lágmúla
368,2 Heimilislækningar Salus Rekstur Heilsugæslustöðvarinnar í Salahverfi
280,0 Heimilislækningar Sjálfstætt starfandi heimilislæknar Sjálfstætt starfandi heimilislæknar (HUH)
25,0 Húðmeðferð Bláa Lónið Samningur um húðmeðferð í Bláa Lóninu
9 ,4 Iðjuþjálfun Sjálfsbjörg Akureyri Iðjuþjálfun
7,4 Iðjuþjálfun Gigtarfélag Íslands Iðjuþjálfun vegna gigtarsjúkdóma o.fl.
385,0 Krabbameinsleit Krabbameinsfélag Íslands Leit að krabbameini í leg­hálsi og brjóstum
199,7 Ljósmæður Ljósmæður Rammasamningur um heimaþjónustu ljósmæðra
4,8 Læknishjálp Útlitslækning ehf. Lasermeðferð
23,4 Læknishjálp Lasersjón Augasteinsaðgerðir
22,8 Læknishjálp Sjónlag Augasteinsaðgerðir
1,0 Læknishjálp Augljós Laseraðgerðir á augum
1,5 Læknishjálp Augnlæknar Reykjavíkur Meðferð með laser við gláku
28,2 Læknishjálp Húðlæknastöðin Meðferð með lasertækjum
5.364,1 Læknishjálp Sérgreinalæknar Rammasamningur um þjónustu sérgreinalækna
1,6 Læknishjálp Lasersjón Aðgerðir með excimer lasertækni
2,5 Læknishjálp Sjónlag Aðgerðir með lasik leysitækni
85,1 Læknishjálp Barnalæknaþjónustan Samningur um barnalæknaþjónustu
312,0 Myndgreining Íslensk myndgreining Samningur um myndgreiningu
683,1 Myndgreining Læknisfræðileg myndgreining Samningur um myndgreiningu
7,4 Rannsóknir Krabbameinsfélag Íslands Rannsóknir í frumumeinafræði
75,4 Rannsóknir Hjartavernd Þjónustusamningur við Hjartavernd
0,3
Rannsóknir
Rannsóknast. í lyfja- og eiturefnafræðum Rannsóknir í lyfja- og eiturefnafræðum
218,3 Rannsóknir Vefjarannsóknastofan Álfheimum Samningur um rannsóknir í líffærameinafræði
328,6 Rannsóknir Rannsóknastofan í Glæsibæ Blóðmeina- og efnameinafræði­rannsóknir
345,2 Rannsóknir Rannsóknasetrið í Mjódd Blóðmeina- og efnameinafræði­rannsóknir
4,1 Sálfræðiþjónusta Sálfræðingar Sálfræðiþjónusta fyrir börn
45,0 Sjúkraflutningar Ernir ehf. Sjúkraflug til útlanda
9,8 Sjúkraflutningar Landhelgisgæsla Íslands Sjúkraflug með þyrlu
20,0 Sjúkraflutningar Akureyrarbær Sjúkraflutningar á Akureyri
12,7 Sjúkraflutningar Akureyrarbær Þjónusta sjúkraflutningamanna við sjúkraflug
18,0 Sjúkraflutningar Brunavarnir Suðurnesja Samningur um sjúkraflutninga á Suðurnesjum
702,0
Sjúkraflutningar
Slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins
Samningur um sjúkraflutninga á höfuð­borgar­svæðinu
252,4 Sjúkraflutningar Mýflug hf. Samningur um sjúkraflug
192,5 Sjúkraflutningar Rauði Kross Íslands Útvegun og rekstur sjúkrabifreiða
0,3 Sjúkrahótel Gististaðir á Akureyri Gistiþjónusta fyrir sjúklinga á Akureyri
171,0 Sjúkrahótel Heilsumiðstöðin/Sinnum Rekstur sjúkrahótels
75,4 Sjúkraþjálfun Endurhæfing ehf. Þjálfun einstaklinga með fjölþættar skerðingar
0,7 Sjúkraþjálfun Salus Innleiðing hreyfiseðla í heilbrigðiskerfinu
0,7 Sjúkraþjálfun Heimilislæknastöðin Innleiðing hreyfiseðla í heilbrigðiskerfinu
1,0 Sjúkraþjálfun Reykjalundur Innleiðing hreyfiseðla í heilbrigðiskerfinu
5,0 Sjúkraþjálfun Styrkur Innleiðing á hreyfiseðlum í heilbrigðiskerfinu
99,1 Sjúkraþjálfun Sjálfsbjörg Akureyri Samningur um sjúkraþjálfun
1.957,7 Sjúkraþjálfun Sjúkraþjálfarar Rammasamningur við sjúkraþjálfara
25,1 Skráning Krabbameinsfélag Íslands Skrá um krabbameinsleit
139,2 Talþjálfun Talmeinafræðingar Rammasamningur um talmeinaþjónustu
1.609,5 Tannmál Tannlæknar Tannlækningar barna
15,0 Ungbarnavernd Miðstöð foreldra og barna ehf. Sérhæfð geðheilbrigðisþjónusta
150,6 Vistun Reykjalundur/Hlein Vistun á Hlein
35,0 Símaráðgjöf Læknavaktin og HSN Heilbrigðistengd símaráðgjöf

     2.      Hefur farið fram rekstrarmat á gildandi samningum af hálfu Ríkisendurskoðunar eða ráðuneyta? Hverjar eru verklagsreglur varðandi samskipti ráðuneytis við aðila sem slíkir samningar hafa verið gerðir við?
    Samkvæmt lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, annast sjúkratryggingastofnun samningsgerð um veitingu heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ráðherra og hefur eftirlit með því að veitt þjónusta sé í samræmi við ákvæði samninga.
    Í reglugerð nr. 510/2010 er nánar fjallað um samningsgerð sem Sjúkratryggingar Íslands annast í umboði ráðherra. Þar kemur fram að þegar dregur að lokum samningstíma skulu Sjúkratryggingar Íslands gera sérstaka úttekt á framkvæmd samnings og hversu vel þjónustuveitandi hefur uppfyllt samningskröfur. Úttektin skal gerð tímanlega svo að svigrúm gefist til að leita annarra leiða um rekstur verkefnisins reynist þess þörf. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert slíkar úttektir vegna helstu samninga og hafa þær legið til grundvallar varðandi ákvarðanir um áfram­haldandi samningsgerð. Þá staðfestir ráðherra alla samninga Sjúkratrygginga Íslands, sbr. 10. gr. reglugerðarinnar þar sem segir: „Heilbrigðisráðherra staðfestir samninga um heilbrigðisþjónustu eftir að þeir hafa verið undirritaðir af Sjúkratryggingum Íslands og þjónustuveitanda enda séu þeir gerðir á grundvelli stefnumörkunar ráðherra og þeirra skilyrða sem hann setti.“ Í aðdraganda staðfestingar er farið nánar ofan í ýmsa þætti samninga þegar ástæða er talin til. Ríkisendurskoðun fær sent afrit af öllum samningum sem falla undir reglugerðina og falla allir samningar undir eftirlit Ríkisendurskoðunar og er það ítrekað með ákvæði í samningum. Ekki eru til verklagsreglur um samskipti ráðuneytis við aðila sem samningar hafa verið gerðir við. Eins og fram kemur fyrr í svarinu hafa Sjúkratryggingar Íslands eftirlit með samningum um heilbrigðisþjónustu. Stofnunin skal skv. 45. gr. laga um sjúkratryggingar hafa samráð við landlækni um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits.

     3.      Hvernig er faglegu mati á samningum um heilbrigðisþjónustu háttað og hve oft fer slíkt mat fram? Hvernig er háttað skráningu heilbrigðisþjónustu sem veitt er samkvæmt samningum af þessu tagi?
    Sjúkratryggingar Íslands skulu skv. 45. gr. laga um sjúkratryggingar hafa eftirlit með starfsemi samningsaðila sem miðar að því að tryggja að teg­undir, magn, gæði, kostn­aður og árangur þjónustu sé í samræmi við gerða samninga. Faglegt eftirlit með heilbrigðisþjónustu er í höndum embættis landlæknis og skulu Sjúkratryggingar Íslands og embætti landlæknis hafa samráð um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits með samningum á vegum Sjúkratrygginga Íslands. Veitendur heilbrigðisþjónustu skulu skrá öll samskipti við sjúklinga í sjúkraskrárkerfi í samræmi við lög um sjúkraskrá og eru ákvæði þess efnis í samningum.

     4.      Hverjar hafa arðgreiðslur verið til einkaaðila sem eru með samning við ríkið um veitingu heilbrigðisþjónustu frá árinu 2007?
    Núgildandi samningar Sjúkratrygginga Íslands eru með þeim hætti að verksali fullgildir samningsskyldur sínar með því að veita umsamda þjónustu á umsömdu verði og hefur afkoma rekstrar, hagnaður eða tap og hugsanlegur arður af rekstri ekki áhrif á greiðslurnar. Eftirlit með samningum er ekki með þeim hætti að einstakar greiðslur þjónustuaðila séu skoðaðar.