Ferill 709. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1193  —  709. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um flutning verkefna til sýslumannsembætta.


     1.      Hvernig miðar flutningi verkefna til sýslumannsembætta samkvæmt aðgerðaáætlun um flutning verkefna til embætta sýslumanna sem gerð var samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 50/2014?
    Engin verkefni sem tilgreind eru í aðgerðaráætlun um flutning verkefna til sýslumanna, frá janúar 2015, heyra undir ráðherra.

     2.      Telur ráðherra unnt að flytja önnur verkefni er heyra undir hann til sýslumannsembætta en þau sem tiltekin eru í fyrrgreindri aðgerðaáætlun?
    Verkefni ráðherra og undirstofnana eru þess eðlis að þau þykja ekki henta vel til flutninga til embætta sýslumanna.

     3.      Hvaða aðferðum er beitt við ákvörðun um að flytja verkefni til sýslumannsembættis og hvað kemur einkum í veg fyrir flutning?
    Við mat á því hvort unnt væri að flytja einhver verkefni ráðherra til embætta sýslumanna er lagt til grundvallar hvort sú sérþekking sem nauðsynleg er til úrlausna verkefna og afgreiðslu erinda sé til staðar hjá sýslumönnum.