Ferill 731. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1195  —  731. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um kaup á upplýsingum um aflandsfélög.

Frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.


     1.      Hversu langur tími leið frá því að ráðuneytinu varð kunnugt um gögn sem vörðuðu aflandsfélög og skattaskjól og þar til þau voru keypt? Hvað skýrir þann drátt sem varð á málinu eftir að skattrannsóknarstjóri óskaði eftir heimild til kaupanna í október 2014?
     2.      Voru í gögnunum upplýsingar um aflandsfélag eða félög sem:
                  a.      voru eða höfðu verið í eigu ráðherra sjálfs,
                  b.      voru eða höfðu verið í eigu aðila sem nátengdir voru ráðherra að ætterni eða mægðum, eða voru við­skipta­félagar hans,
                  c.      voru í eigu annarra ráðherra?
     3.      Hvernig rökstyður ráðherra það verklag að segja skattrannsóknarstjóra að leggja sjálfstætt mat á gögnin en setja jafnframt skilyrði fyrir samningum við seljanda þeirra?
     4.      Hafa upplýsingar úr gögnunum orðið tilefni til viðbragða af hálfu ráðuneytisins og þá hvaða viðbragða?
     5.      Hvaða fundi skattrannsóknarstjóra og starfsfólks ráðuneytisins um kaup á gögnunum sat ráðherra? Óskað er upplýsinga um fjölda slíkra funda, dagsetningu þeirra og fundarefni.
     6.      Hvenær varð ráðherra ljóst hversu mörg íslensk nöfn væri að finna í gögnunum og hafði það áhrif á afstöðu hans til kaupanna?
     7.      Hafði sú staðreynd að ráðherra átti sjálfur aflandsfélag um tíma áhrif á afstöðu hans til kaupa á gögnunum?


Skriflegt svar óskast.