Ferill 732. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1196 — 732. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um þátttöku Alþingis í störfum alþjóðlegra samtaka þingkvenna
og kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Flm.: Katrín Júlíusdóttir, Ásta Guðrún Helgadóttir, Brynhildur Pétursdóttir,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir.
Alþingi ályktar að þátttaka í störfum alþjóðlegra samtaka þingkvenna og kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna verði hluti af reglubundnu alþjóðastarfi þingsins.
Greinargerð.
Alþjóðleg samtök þingkvenna (e. Women in Parliaments Global Forum – WIP) voru stofnuð árið 2013. Samtökin eru óháð og óflokkspólitísk, rekin með stuðningi þjóðþinga, alþjóðastofnana, frjálsra félagasamtaka og einkafyrirtækja. Markmið þeirra er að auka jafnrétti kynjanna í stjórnmálum með því að veita þingkonum vettvang til að deila reynslu sinni, þekkingu og bestu starfsvenjum. Samtökin eru eini vettvangur þingkvenna á heimsvísu. Þingkonur frá yfir 130 ríkjum hafa tekið þátt í störfum samtakanna frá stofnun þeirra, bæði þingkonur þjóðþinga víðs vegar um heiminn og Evrópuþingsins. Samtökin funda að jafnaði tvisvar á ári ásamt því að standa fyrir og taka þátt í ráðstefnum og rannsóknum um stöðu og réttindi kvenna um allan heim. Á fundum samtakanna deila þingkonur reynslu sinni og þekkingu, ræða þau málefni sem eru efst á baugi alþjóðlega og þróa svæðisbundnar og alþjóðlegar áætlanir til að auka fjölda þingkvenna í heiminum. Fundir samtakanna eru ávallt haldnir í samstarfi við þjóðþing landa sem geta deilt jákvæðri reynslu á sviði jafnréttismála. Sérfræðingar alþjóðlegra samstarfsaðila samtakanna sækja einnig fundi þeirra, þar á meðal Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women), Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP), Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) og Alþjóðabankans.
Samtökin stóðu fyrir fræðsluferð til Íslands vorið 2014 til að kynna sér þann árangur sem náðst hefur hér á landi í jafnrétti kynjanna og stjórnmálaþátttöku kvenna. Ísland hefur haft forystu í málaflokknum frá árinu 2009 samkvæmt árlegum skýrslum Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum). Í heimsókninni var m.a. rætt um hvort hægt væri að yfirfæra leiðir sem farnar voru á Íslandi á önnur heimssvæði. Þingkonur yfir 20 ríkja áttu fundi með forseta Íslands, forsætisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem og þingkonum allra flokka á Alþingi. Í heimsókninni heiðruðu samtökin jafnframt Vigdísi Finnbogadóttur, sem var fyrsta konan í heiminum til að ná kjöri sem þjóðhöfðingi, fyrir að hafa með ævistarfi sínu aukið völd kvenna og eflt stjórnmálaþátttöku þeirra. Á dagskrá fræðsluferðarinnar voru jafnframt vettvangsferðir í fjögur fyrirtæki sem konur stjórna; Actavis, Lýsi, Rio Tinto Alcan og Steinunni. Þá ber að nefna að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur setið í ráðgjafarnefnd WIP frá stofnun og nýverið var Hanna Birna Kristjánsdóttir alþingismaður skipuð formaður framkvæmdastjórnar samtakanna.
Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna er meginvettvangur milliríkjasamstarfs um jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna. Nefndin var stofnuð árið 1946 og er í lykilhlutverki alþjóðlega við að stuðla að réttindum kvenna, skrásetja stöðu þeirra víðs vegar um heiminn og móta alþjóðlega staðla um jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna. Í nefndinni sitja fulltrúar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna, borgaralegra samtaka og stofnana Sameinuðu þjóðanna. Nefndin fundar árlega í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Á fundinum er rætt um framfarir og frávik í framkvæmd ríkja á ákvæðum Peking-sáttmálans og framkvæmdaáætlunar um réttindi og valdeflingu kvenna frá árinu 1995 sem liggja til grundvallar jafnréttisáætlunum um allan heim. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna semja jafnframt um frekari aðgerðir til að flýta framförum og stuðla að því að konur nýti sér pólitískan, efnahagslegan og félagslegan rétt sinn. Þá er rætt um aðkallandi málefni sem snerta jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna.