Ferill 736. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1205  —  736. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um umferðaröryggisgjald o.fl.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hver er heildarupphæð umferðaröryggisgjalds sl. ár og hvernig hefur fénu verið ráðstafað sundurliðað eftir verkefnum? Hvernig eru verkefnin ákveðin og þeim forgangsraðað?
     2.      Hve mikið af gjaldinu fer í greiðslu launakostnaðar, hvað er þar um að ræða mörg stöðugildi og hvaða titil hafa þessi störf? Hve mikið af gjaldinu fer í aðkeypta þjónustu?
     3.      Hvaða öðrum verkefnum sem tengjast umferðaröryggi kemur Sam­göngustofa að?


Skriflegt svar óskast.