Ferill 739. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1208 — 739. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um byggingarkostnað Hörpu.
Frá Haraldi Einarssyni.
1. Hvaða ákvæði í fjárlögum eða fjáraukalögum var grundvöllur ákvörðunar um byggingu Hörpu og var það bundið við upphæð? Hvernig fer það saman við 41. gr. stjórnarskrárinnar?
2. Hver var áætlaður byggingarkostnaður sem lagður var til grundvallar samningnum um byggingu hússins sem var undirritaður 9. mars 2006, á verðlagi þess tíma og uppreiknað miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í mars 2015? Hvaða tekjur voru þá áætlaðar fyrir árin 2012–2014 á verðlagi í mars 2006 og uppreiknaðar miðað við vísitölu neysluverðs í 2015?
3. Hver var áætlaður byggingarkostnaður sem lagður var til grundvallar samningi um að halda áfram framkvæmdum sem var undirritaður 19. febrúar 2009? Hve mikið af kröfum var afskrifað á verðlagi í febrúar 2009 og uppreiknað miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í mars 2015? Hvaða tekjur voru þá áætlaðar fyrir árin 2012–2014, á verðlagi í febrúar 2009 og uppreiknaðar miðað við vísitölu neysluverðs í mars 2015?
4. Hver er endanlegur byggingarkostnaður Hörpu að meðtöldum niðurfelldum kröfum á verðlagi hvers tíma og uppreiknað miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í mars 2015?
Skriflegt svar óskast.