Ferill 545. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1230  —  545. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um matvæli, lögum um slátrun og sláturafurðir og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (eftirlit, verkaskipting, EES-samningurinn).

(Eftir 2. umræðu, 3. maí.)


I. KAFLI


Breyting á lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum.
1. gr.

    A-liður 6. gr. laganna orðast svo: allri frumframleiðslu matvæla, annarra en matjurta.

2. gr.

    Í stað 2. og 3. málsl. 1. mgr. 9. gr. laganna koma fjórir nýir málsliðir, svohljóðandi: Matvælafyrirtæki sem annast frumframleiðslu matjurta þurfa ekki starfsleyfi en skulu tilkynna heilbrigðis­nefnd um starfsemi sína. Matvælafyrirtæki sem stunda sauðfjár- eða hrossarækt þurfa ekki starfsleyfi en skulu tilkynna Matvæla­stofnun um starfsemi sína áður en hún hefst. Matvælafyrirtæki sem framleiða kapla-, geita- eða sauðamjólk skulu hafa starfsleyfi. Matvælafyrirtæki sem annast frumframleiðslu spíra skulu hafa starfsleyfi.

II. KAFLI

Breyting á lögum um slátrun og sláturafurðir, nr. 96/1997, með síðari breytingum.

3. gr.

    17. gr. a laganna orðast svo:
    Ráðherra er heimilt að innleiða með reglu­gerð heilbrigðisreglur varðandi aukaafurðir dýra og afurðir unnar úr þeim.

III. KAFLI

Breyting á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994,
með síðari breytingum.

4. gr.

    5. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:
    Ráðherra er heimilt að innleiða með reglu­gerð heilbrigðisreglur varðandi aukaafurðir dýra og afurðir unnar úr þeim.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.