Ferill 612. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1240  —  612. mál.




Svar


innanríkis­ráð­herra við fyrirspurn frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur um stöðu nethlutleysis hjá íslenskum fjarskiptafyrirtækjum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur verið gerð úttekt á stöðu og fram­kvæmd nethlutleysis meðal íslenskra fjarskiptafyrirtækja? Ef svo er, til hvaða þátta var litið við úttektina og hverjar voru meginniðurstöður hennar með tilliti til hvers þáttar fyrir sig? Ef svo er ekki, stendur til að slík úttekt verði gerð vegna mögulegrar innleiðingar á reglu­gerð (ESB) nr. 2015/2120 (Telecom Single Market)?

    Nethlutleysi felst í því að notendur internetsins geti nálgast og miðlað efni eða þjónustu á internetinu óháð hug- og tæknibúnaði, notkunareiginleikum, upprunavistfangi eða móttökuvistfangi. Forsendur reglunnar er að greiða fyrir internet-aðgangi fyrir hinn al­menna borgara í frjálsu og tæknivæddu samfélagi og er um leið afleiðing eða viðurkenning á mikilvægi hans.
    Reglan um nethlutleysi felur þó ekki í sér að net- og umferðar­stýringar séu með öllu óheimilar. Þannig kemur oft upp sú staða að net- og umferðar­stýringar eru nauðsynlegar til þess að mögulegt sé að tryggja ákveðin gæði eða til að bregðast við álagi á fjarskiptanetum. Slíkar stýringar verða á hinn bóginn að vera málefnalegar og hóflegar og þeim beitt á jafnræðisgrundvelli. Þá mega þær ekki vara lengur en þörf er á.
    Í evrópskum fjarskiptarétti hefur reglan um nethlutleysi þróast mjög á undanförnum árum. Á síðasta ári gaf Evrópuþingið og ráðið út reglu­gerð nr. 2015/2120/EB, oft nefnd TSM-reglu­gerðin hér á landi, þar sem m.a. er kveðið á um hertar reglur um fram­kvæmd nethlutleysis. Má búast við því að reglu­gerðin verði tekin upp í EES-samninginn innan skamms og í fram­haldinu innleidd í íslenskan rétt.
    Með tilliti til þessarar þróunar og fyrirséðra breytinga á reglum hérlendis um nethlutleysi taldi Póst- og fjarskipta­stofnun vera tilefni til þess að gera úttekt á stöðu nethlutleysis hér á landi. Úttektinni var hrundið af stað í nóvember árið 2015 og lauk henni með útgáfu skýrslu í byrjun apríl 2016. Skýrslan er aðgengileg á vef Póst- og fjarskipta­stofnunar: www.pfs.is/um-pfs/frettir/frett/2016/04/04/Stada-nethlutleysis-a-Islandi-nidurstodur-uttektar-PFS.
    Íslensku fjarskiptafyrirtækin voru spurð út í netstýringar, bæði í fastanetum og farnetum. Var m.a. spurt hvort flutningi á þjónustu sem veitt væri um al­menna internettengingu væri mismunað með einhverjum hætti, m.a. varðandi jafningjanet, VoIP, skilaboða­þjónustu eða aðrar tilteknar þjónustur eða OTT-þjónustur eða hvort tilteknar sér­þjónustur fengju forgangsmeðferð. Einnig var spurt hvort aðgengi notenda væri breytt eftir að hafa hlaðið upp eða niður ákveðnu magni af gögnum og hvort flutningseiginleikum væri hagað eftir teg­und endabúnaðar.
    Eins og fram kemur í skýrslunni er það meginniðurstaða úttektarinnar að fjarskiptafyrirtæki beiti al­mennt ekki umferðar­stýringum á netinu með það að markmiði að hafa áhrif á eða takmarka efni eða þjónustu, t.d. með því að takmarka hraða eða útiloka skráarskipta­þjónustur eða annars konar þjónustu sem eru í boði á internetinu. Sú niðurstaða er jákvæð, enda er nethlutleysisreglum einmitt ætlað að stuðla að jöfnum aðgangi að þjónustuframboði og að netið geti áfram verið vett­vangur framleiðni og nýsköpunar, jafnframt því sem al­menningur geti nálgast það efni eða þjónustu sem hann sjálfur kýs. Þá má einnig ráða af úttektinni að þegar fjarskiptafyrirtæki beita umferðar­stýringum, t.d. til að bregðast við álagi á fjarskiptanetum, byggist slíkar aðgerðir á skil­málum í við­skipta­samningi við áskrifendur sem þannig séu upplýstir um slíkar ráðstafanir.
    Með þróun tæknivædds upplýsinga­samfélags hafa skapast nýjar þarfir sem rétt þykir að hið opinbera beiti sér fyrir að uppfylla, t.d. um uppbyggingu á fjarskiptainnviðum þar sem markaðsbrestur ríkir, og að hafa eftirlit með öryggi og gæðum fjarskipta­þjónustu svo allir geti átt kost á háhraðagagnaflutnings­þjónustu sem uppfylli ríkar kröfur um gæði, öryggi og aðgengi að efni og þjónustu.
    Í samræmi við reglur um þinglega meðferð EES-mála hefur utanríkis­mála­nefnd Alþingis nú til meðferðar reglu­gerð (ESB) nr. 2015/2120 (Telecom Single Market). Innanríkis­ráðu­neytið hefur lagt til að gerðin verði innleidd annars vegar með reglu­gerð á grundvelli reglu­gerðarheimildar 35. gr. fjarskiptalaga, nr. 81/2003, að því er snertir þann hluta gerðarinnar er varðar reiki. Reglur gerðarinnar er varða nethlutleysi verða hins vegar ekki innleiddar nema með laga­breytingum og hefur ráðu­neytið hafið undirbúning að gerð lagafrumvarps til innleiðingar á reglum um nethlutleysi.