Ferill 755. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1255  —  755. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðis­ráð­herra um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands við meðferð hjá kírópraktorum.

Frá Þórunni Egilsdóttur.


     1.      Því greiða Sjúkratryggingar Íslands ekki hluta af kostnaði við meðferð hjá kírópraktorum sem hafa viðurkennt starfsleyfi frá landlækni?
     2.      Stendur til að breyta núverandi fyrirkomulagi? Ef ekki, hvað stendur í vegi fyrir því?


Skriflegt svar óskast.