Ferill 769. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1298  —  769. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um ávísun getnaðarvarnarlyfja.

Frá Brynhildi Pétursdóttur.


     1.      Sér ráðherra eitthvað því til fyrirstöðu að ljósmæður öðlist rétt til að ávísa getnaðarvarnarlyfjum eins og landlæknir hefur kallað eftir frá árinu 2008?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ljósmæðrum verði veittur þessi réttur? Ef svo er, hvenær má gera ráð fyrir að breytingin taki gildi? Ef svo er ekki, hvaða vankanta sér ráðherra á því að ljósmæður ávísi getnaðarvarnarlyfjum?
     3.      Hyggst ráðherra endurflytja 652. mál frá 140. löggjafarþingi, þ.e. frumvarp þar sem lögð var til ávísanaheimild af þessu tagi?


Skriflegt svar óskast.