Ferill 792. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1368  —  792. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um fylgd forseta Íslands til og frá Keflavíkurflugvelli og greiðslur til handhafa forsetavalds.

Frá Brynhildi Pétursdóttur.


     1.      Tíðkast enn sú venja að handhafar forsetavalds fylgi forseta Íslands til og frá Keflavíkurflugvelli vegna ferða hans til og frá landinu?
     2.      Ef svo er, hversu oft var honum fylgt árlega árin 2012–2015?
     3.      Hverjar hafa árlegar greiðslur verið til handhafa forsetavalds á árunum 2010–2015 vegna ferða forsetans til útlanda?


Skriflegt svar óskast.