Ferill 793. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1369 — 793. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um rannsókn á aflandsfélögum.
Frá Birgittu Jónsdóttur.
1. Hefur verið stofnað til rannsóknar, af hálfu íslenskra yfirvalda, þ.e. lögreglu eða skattyfirvalda, á uppruna fjár í aflandsfélögum? Ef svo er, hefur verið leitað liðsinnis erlendra eða alþjóðlegra aðila á borð við Europol og Interpol við slíka rannsókn?
2. Telur ráðherra ástæðu til að veita viðeigandi yfirvöldum fullnægjandi fjármagn til slíkrar rannsóknar?
Skriflegt svar óskast.