Ferill 708. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1371  —  708. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um flutning verkefna til sýslumannsembætta.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig miðar flutningi verkefna til sýslumannsembætta samkvæmt aðgerðaáætlun um flutning verkefna til embætta sýslumanna sem gerð var samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 50/2014?
     2.      Telur ráðherra unnt að flytja önnur verkefni er heyra undir hann til sýslumannsembætta en þau sem tiltekin eru í fyrrgreindri aðgerðaáætlun?
     3.      Hvaða aðferðum er beitt við ákvörðun um að flytja verkefni til sýslumannsembættis og hvað kemur einkum í veg fyrir flutning?


    Samkvæmt skýrslu forsætisráðherra og innanríkisráðherra um flutning verkefna til sýslumannsembætta varð niðurstaðan að engin verkefni innan velferðarráðuneytis þóttu henta til flutnings til sýslumanna. Að því er varðar þann hluta er fellur undir málefnasvið félags- og húsnæðismálaráðherra var talið koma til greina að flytja afgreiðslu varðandi innflytjendamál en niðurstaðan varð sú að betra væri að hafa afgreiðsluna innan ráðuneytisins þar sem sérþekking er til staðar á málaflokknum. Hafin var vinna við að undirbúa flutning verkefna Tryggingastofnunar ríkisins frá embættum sýslumanna en fallið var frá þeim áformum í því skyni að stuðla að þeirri uppbyggingu embættanna sem stefnt er að.