Ferill 667. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1376  —  667. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (tryggingagjald, samsköttun milli skattþrepa o.fl.).

Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Við umfjöllun nefndarinnar um frumvarpið komu upp afar ólík sjónarmið hvað varðar samsköttun hjóna milli ólíkra skattþrepa en í því er lagt til að heimild til samsköttunar verði afnumin. Forsaga málsins er að þegar þriggja þrepa tekjuskattskerfið var tekið upp árið 2010 var um leið tekin upp sérstök ívilnandi regla sem nýttist hjónum í þeim tilvikum þegar annað hjóna, eða samskattaðs fólks, er í efsta tekjuskattsþrepi en hitt nær á sama tíma ekki að fullnýta miðþrepið. Gert hafði verið ráð fyrir að þessi samsköttunarregla mundi falla niður með fækkun skattþrepa 1. janúar 2017. Sú breyting var þó gerð við vinnslu málsins á þinginu að reglunni var viðhaldið.
    Fjármála- og efnahagsráðherra lagði nú til að nýju að reglan yrði afnumin og hafði m.a. þau rök í málinu að samsköttunarreglan yki ráðstöfunartekjur tekjuhærri heimila, að langmestu leyti heimila í hæstu tekjutíund. Þau heimili sem munu hljóta ábatann eru jafnframt með mjög stóran hlut fjármagnstekna heimila. Hún gengur því gegn því almenna hlutverki hins opinbera að stuðla fremur að því að jafna tekjudreifinguna en auka hana. Tekjuhærri heimili geta að auki nýtt sér samsköttunarregluna til fulls ef annar aðilinn hefur tök á að taka allar tekjur sínar í gegnum samlagsfélag eða einkahlutafélag. Samsköttunarreglan setur enn fremur í uppnám hið yfirlýsta markmið kerfisbreytingarinnar í tekjuskatti 2016–2017, að bæta fyrst og fremst hag millitekjuhópa.
    Þá var einnig bent á að gera mætti ráð fyrir því að samsköttunarreglan stuðlaði beinlínis að auknu kynjamisrétti, þar sem konur hefðu að jafnaði lægri laun en karlar og bæru að auki meiri ábyrgð á ólaunuðum heimilis- og umönnunarstörfum. Þar sem karlar eru tekjuhærri í u.þ.b. 75% sambanda er þetta aðgerð sem gagnast körlum í meira mæli en konum. Ráðstöfunartekjur tekjuhærri einstaklingsins, í flestum tilvikum karlsins, aukast en tekjur tekjulægri einstaklingsins, þ.e. í flestum tilvikum konunnar, haldast óbreyttar. Þetta þýðir að karlar fá skattaívilnun sem byggist á vinnu og launum kvenna, ráðstöfunartekjur þeirra aukast og launabil á milli kynja eykst sem er þvert á markmið um efnahagslegt jafnræði á milli karla og kvenna.
    Út frá jafnréttissjónarmiðum skiptir máli að skattkerfi séu ekki með innbyggðan hvata sem geti dregið úr atvinnuþátttöku eða fjárhagslegu sjálfstæði. Samsköttun sem þessi felur í sér hvata fyrir konur að taka á sig í meiri mæli en karlar ólaunuð heimilis- og umönnunarstörf sem birtist til að mynda í háu hlutfalli kvenna í hlutastarfi. Samsköttun sem þessi dregur því úr efnahagslegu jafnrétti á milli kynja og fjárhagslegu sjálfstæði kvenna ásamt því að stuðla að hefðbundinni verkaskiptingu inni á heimilum þar sem þær skyldur lenda í meira mæli á konum en körlum. Færanleiki á milli skattþrepa er því til þess fallinn að auka kynjamisrétti.
    Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar féllst ekki á þessi rök eins og sjá má á nefndaráliti hans og breytingartillögu. Verði sú breytingartillaga samþykkt mun vanta tekjur upp á þrjá milljarða kr. í tekjuáætlun ríkissjóðs og er það algjörlega óásættanlegt að þessi breyting, sem er tekjuhæstu hópum samfélagsins til hagsbóta, leiði til frekari niðurskurðar á grunnþjónustu fyrir allan almenning. Eðlilegt hefði þá verið að leggja til hækkun á efra skattþrepi til að skila inn tekjum í stað þessara milljarða.
    Minni hlutinn leggur til að breytingatillaga meiri hlutans verði felld og bendir á að fjölmennasta verkalýðshreyfing landsins, Alþýðusamband Íslands, styður upprunalega tillögu ráðherra eins og minni hlutinn.

Alþingi, 30. maí 2016.

Katrín Jakobsdóttir,
frsm.
Valgerður Bjarnadóttir.