Ferill 758. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1383  —  758. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (veltumörk skattskyldu og fjárhæðarmörk uppgjörstímabila).

Frá atvinnuveganefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið sem hún lagði fram í kjölfar umfjöllunar í nefndinni um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (457. mál). Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráði Íslands.
    Gert er ráð fyrir því að skatttekjur ríkissjóðs lækki um allt að hálfum milljarði kr. verði frumvarpið að lögum en þá hefur ekki verið tekið mið af neikvæðum skilum, þ.e. þegar útskattur er umfram innskatt. Nefndinni bárust upplýsingar um að álagning aðila með veltu á bilinu 0–1 millj. kr. hefði á árinu 2015 numið -903,4 millj. kr. Að frátöldum aðilum sem hefðu hafið rekstur árið 2015 og því e.t.v. þurft að kosta miklu til í byrjun rekstrar næmi álagning aðila í þessum flokki -393,5 millj. kr.
    Björt Ólafsdóttir og Þórunn Egilsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 27. maí 2016.

Jón Gunnarsson,
form., frsm.
Lilja Rafney Magnúsdóttir. Haraldur Benediktsson.
Ásmundur Friðriksson. Kristján L. Möller. Páll Jóhann Pálsson.
Þorsteinn Sæmundsson.