Ferill 698. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1452  —  698. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Brynhildi Pétursdóttur um fundahöld.


     1.      Hversu margir hefðbundnir fundir voru haldnir í ráðuneytinu árin 2014 og 2015 með starfsmönnum undirstofnana þess sem eru á landsbyggðinni?
    Ekki er haldin sérstök sameiginleg skrá yfir þá fundi sem haldnir eru í ráðuneytinu með starfsmönnum undirstofnana á landsbyggðinni.

     2.      Hversu margir fjarfundir voru haldnir í ráðuneytinu umrædd ár með starfsmönnum stofnana þess sem eru úti á landi?
    Að jafnaði eru haldnir um 60–70 fjarfundir á ári með starfsmönnum undirstofnana sem eru úti á landi.

     3.      Hver var kostnaður stofnana ráðuneytisins vegna ferða starfsmanna þess til og frá Reykjavík vegna funda í ráðuneytinu árin 2014 og 2015?
    Samkvæmt upplýsingum frá undirstofnunum ráðuneytisins sem eru úti á landi má gera ráð fyrir að heildarkostnaður vegna ferða til og frá Reykjavík vegna funda í ráðuneytinu á árunum 2014 og 2015 sé um 8,5 millj. kr.

     4.      Hefur starfsfólk ráðuneytisins fengið þjálfun í notkun á fjarfundabúnaði, bæði hvað varðar tæknilegu hliðina og fundarstjórn?
    Starfólk hefur fengið kynningu á því hvernig fjarfundabúnaður er ræstur og virkjaður og hvernig beri að nota hann á fundum. Á hverri skrifstofu eru starfsmenn, sem hefur verið kennt á búnaðinn, sem aðrir geta leitað til.

     5.      Telur ráðherra að unnt sé að auka skilvirkni og afköst í starfsemi ríkisins með notkun fjarfundabúnaðar og ef svo er, hvernig? Hefur ráðuneytið mótað og kynnt stefnu í þessu sambandi?
    Margar af undirstofnunum ráðuneytisins eru staðsettar úti á landi, þar á meðal menntastofnanir, þar sem mikil og góð reynsla er af notkun fjarfundabúnaðar. Notkun hans hefur m.a. stuðlað að því að hægt hefur verið að halda fundi í ráðuneytinu þrátt fyrir að einhverjir fundarmanna hafi ekki átt heimangengt í þeim tilfellum. Auk tímasparnaðar hefur búnaðurinn sparað ráðuneytinu og undirstofnunum þess talsverðan ferðakostnað jafnt vegna funda sem haldnir eru á landsbyggðinni og erlendis.
    Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur ekki mótað sérstaka stefnu um notkun fjarfundabúnaðar en þess í stað hvatt starfsmenn til notkunar hans.