Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1457  —  619. mál.




Svar


forseta Alþingis við fyrirspurn frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur um kynjahlutföll í utanlandsferðum á vegum Alþingis.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hafa kynjahlutföllin verið í utanlandsferðum á vegum Alþingis á árunum 2009–2016?

    Frá ársbyrjun 2009 til 1. júní 2016 var hlutfall kvenþingmanna í utanlandsferðum á vegum Alþingis 41% og karlþingmanna 59%. Þetta hlutfall er nokkurn veginn í samræmi við kynjahlutföll á Alþingi eftir þingkosningar 2009 og 2013. Eftir alþingiskosningarnar 2009 voru þingkonur tæplega 43% þingmannahópsins og eftir alþingiskosningarnar 2013 voru konur tæplega 40% þingmanna.