Ferill 812. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1493  —  812. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um skattundanþágur vegna innflutts lífeldsneytis.

Frá Sigríði Á. Andersen.


    Hve háum fjárhæðum nema undanþágur frá sköttum, þ.e. hvers kyns niðurfelling eða endurgreiðsla á vörugjöldum, olíugjaldi og kolefnisgjaldi að viðbættum virðisaukaskatti, vegna innflutnings á lífeldsneyti á borð við etanól og hvers kyns lífdísil á árunum 2012–2015?


Skriflegt svar óskast.