Ferill 821. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.
Þingskjal 1541 — 821. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um viðbrögð við fjölgun alvarlegra umferðarslysa.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Eru uppi áform um að bregðast við fjölgun alvarlegra umferðarslysa á síðustu árum? Ef svo er, í hverju felast þau og hvernig er þeim forgangsraðað?
2. Hvað hefur verið gert eða hvað er áformað að gera til að sporna við þeirri þróun að umferðarslysum þar sem erlendir ferðamenn eiga í hlut hefur fjölgað mjög? Eru t.d. áform um að efla upplýsingamiðlun á erlendum tungumálum um aðstæður til aksturs og hjólreiða og það sem sérstaklega þurfi að varast í umferðinni hérlendis?
Skriflegt svar óskast.