Ferill 830. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1566 — 830. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um endurbætur á Vesturlandsvegi.
Frá Elsu Láru Arnardóttur.
1. Standa yfir viðræður við hlutaðeigandi aðila um sameiginlegt átak vegna vegabóta á Vesturlandsvegi og framkvæmdir á Kjalarnesi vegna tengingar við fyrirhugaða Sundabraut og hvernig brugðist verði við aukinni umferð í Hvalfjarðargöngum? Ef svo er, hvenær er áætlað að viðræðunum ljúki? Ef ekki, er ætlunin að hefja slíkar viðræður?
2. Er unnið að tímasettri áætlun um framkvæmd og fjármögnun framangreindra verkefna?