Ferill 834. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1570  —  834. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um íslenska fanga erlendis.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hversu margir íslenskir ríkisborgarar eru í erlendum fangelsum?
     2.      Hefur ráðuneytið komið einhverjum þeirra til aðstoðar og þá hvernig?
     3.      Hafa einhverjir íslenskir fangar erlendis verið fluttir til Íslands áður en afplánun lauk?


Skriflegt svar óskast.