Ferill 835. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1571  —  835. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um innheimtu hraðasekta.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hvaða aðferð er notuð til innheimtu hraðasekta á bílaleigubíla, annars vegar við umferðareftirlit lögreglu og hins vegar með hraðamyndavélum?
     2.      Hversu hátt hlutfall innheimtist af hraðasektum á bílaleigubíla, annars vegar við umferðareftirlit lögreglu og hins vegar með hraðamyndavélum?
     3.      Eru einhver áform um breytt fyrirkomulag innheimtu hraðasekta á bílaleigubíla með hraðamyndavélum?


Skriflegt svar óskast.