Ferill 799. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1610  —  799. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um inn- og útskatt hótela og gistiheimila.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur inn- og útskattur hótela og gistiheimila sem og endurgreiðslur til þeirra vegna mismunar verið árlega á árunum 2013, 2014 og 2015 og hvernig er skiptingin milli reksturs og stofnkostnaðar?

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Taflan sýnir þær fjárhæðir sem spurt er um. Til nánari skýringar er eftirfarandi tekið fram:
    Upplýsingarnar taka til þeirra aðila sem skráðir eru á grunnskrá virðisaukaskatts vegna rekstrar hótela og gistiheimila, með og án veitingaþjónustu, samkvæmt atvinnugreinarnúmerunum (ÍSAT-nr.) 55.10.1 og 55.10.2, en þeir voru 415 talsins árið 2013, 454 árið 2014 og 510 árið 2015. Upplýsingarnar taka ekki til aðila sem reka hótel- og gistiþjónustu meðfram aðalstarfsemi sinni.
    Þau grunngögn sem byggt er á eru annars vegar skattframtöl lögaðila og einstaklinga og viðeigandi fylgigögn fyrir rekstrarárin 2013 og 2014 og hins vegar virðisaukaskattsskýrslur fyrir rekstrarárið 2015. Upplýsingar úr framtölum fyrir rekstrarárið 2015 liggja ekki enn fyrir og því er ekki unnt að svara því hvernig innskattur rekstrarársins 2015 skiptist eftir rekstri og stofnkostnaði.
    Innskatt vegna almenns rekstrarkostnaðar er unnt að greina í skattframtölum/rekstrarframtölum, skiptan eftir skattþrepum og útgjaldaliðum.
    Innskattur vegna stofnkostnaðar er greinanlegur út frá upplýsingum í skattframtali annars vegar og eignaskrá hins vegar. Eignaskrá er fylgiskjal með skattframtali rekstraraðila sem inniheldur upplýsingar um kaup og sölu eigna á rekstrarárinu.
    Þau gögn sem að framan greinir gera kleift að skipta innskatti af aðföngum upp eftir því hvort aðföngin eru til rekstrar eða fjárfestingar. Þau ná þó ekki til alls innskatts sem fyrirtæki kann að fá endurgreiddan. Til viðbótar koma nokkrir fleiri liðir sem eru tilteknir í kaflanum „Ýmis innskattur“ á skattframtalinu. Dæmi um það er innskattur af eigin innflutningi og innskattur af eignfærðum kostnaði. Þeir liðir sem þannig eru ekki skýrt merktir annaðhvort rekstri eða fjárfestingu vega ekki þungt í heildarinnskatti. Þeir eru hér flokkaðir eftir því sem líklegt má telja og þannig fæst sú niðurstaða um skiptingu heildarinnskatts sem sýnd er í töflunni.
    Rétt er að taka það fram að fyrirkomulag eignarhalds á húsnæði fyrir starfsemina getur haft áhrif á skiptingu innskatts fyrirtækisins, eftir því hvort hann tengist rekstrarkostnaði eða stofnkostnaði þess. Innskattur vegna greiddrar húsaleigu er um þriðjungur af heildarinnskatti vegna rekstrarútgjalda atvinnugreinarinnar. Sá liður er sýndur sérstaklega í töflunni.
    Innskattur vegna stofnkostnaðar við húsnæðið fellur því til annað hvort hjá leigusala eða rekstraraðila hótelsins. Þau fyrirtæki sem ekki bera kostnað vegna húsaleigu hafa að jafnaði hærri innskatt vegna stofnkostnaðar en þau sem greiða húsaleigu. Niðurstöður töflunnar um innskatt af aðföngum vegna stofnkostnaðar geta því ekki talist traust vísbending um stofnkostnað í því húsnæði sem atvinnugreinin notar.
    Einnig er rétt er að minna á að 1. janúar 2015 tók gildi breyting á skatthlutföllum VSK, þegar skatthlutfall almenna þrepsins var lækkað úr 25,5% í 24% og skatthlutfall neðra þreps hækkað úr 7% í 11%. Við þetta lækkaði innskattur af aðföngum vegna stofnkostnaðar að öðru óbreyttu, því reikna má með að þau séu í almenna skattþrepinu. Innskattur af aðföngum til rekstrar varð hins vegar ekki fyrir miklum áhrifum í heild, þar sem skipting aðfanga atvinnugreinarinnar eftir skattþrepum er slík að vegið meðalskatthlutfall þeirra breyttist lítið við kerfisbreytinguna.
    Eins og sjá má í töflunni voru nettóskil umræddra atvinnugreina á virðisaukaskatti neikvæð á árunum 2013 og 2014. Á árinu 2015 snýst þróunin við þegar nettóskilin verða jákvæð um tæpan hálfan milljarð króna. Það skýrist annars vegar af samsetningu veltu og aðfanga starfseminnar eftir skattþrepum, þar sem veltan er að mestu leyti í neðra þrepi en aðföngin í almennu þrepi, og hins vegar af hinu breiða bili sem var á milli skattþrepanna lengst af. Af töflunni sést að viðsnúningurinn, sem nam 1,5 milljörðum kr. á árinu 2015, skýrist að stórum hluta af hækkun neðra skattþrepsins úr 7% í 11%, þótt mikil veltuaukning í neðra þrepi eigi einnig drjúgan hlut að máli.