Ferill 820. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1629  —  820. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um barnalífeyri.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mörg börn hlutu barnalífeyri frá Tryggingastofnun árin 2014 og 2015 vegna foreldramissis eða menntunarframlags, hversu háar voru þessar greiðslur og hve stór hluti voru þær af heildargreiðslum barnalífeyris?

    Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins var barnalífeyrir vegna andláts for­eldris greiddur vegna samtals 901 barns árið 2014 og vegna samtals 880 barna árið 2015 en ekkert ungmenni á aldrinum 18–20 ára í skóla eða starfsþjálfun fékk greiðslur þessi ár vegna missis foreldris.
    Samkvæmt upplýsingum Tryggingastofnunar ríkisins voru útgjöld vegna barnalífeyris vegna andláts foreldris samtals 288 millj. kr. árið 2014 sem nam 8,46% af heildargreiðslum barnalífeyris. Samtals voru þessi útgjöld 286 millj. kr. árið 2015 sem nam 8,14% af heildar­greiðslum barnalífeyris.