Ferill 803. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1630  —  803. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Steinunni Þóru Árnadóttur um framtíðarhúsnæði fatlaðs fólks samkvæmt þjónustusamningi við Ás styrktarfélag.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig stendur vinna við að koma fötluðu fólki á vistunardeild 18 og 20 að Kópavogs­braut 5a og 5c í framtíðarhúsnæði sem fullnægir þeim skilyrðum sem fram koma í reglugerð nr. 1054/2010 um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu samkvæmt þjónustusamningi við Ás styrktarfélag frá 25. september 2013, sem leggja átti áherslu á að hæfist strax og ráðuneytið ætti frumkvæði að?
    
    Velferðarráðuneytið hefur við úrvinnslu þessa máls lagt áherslu á að þjónusta og ytra umhverfi þeirra sem búa á deildum 5a og 5c sé í eins miklu samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1054/2010 og nokkur kostur er. Að frumkvæði ráðuneytisins hlutaðist það á árinu 2013 til um að Landspítalinn gengi frá samkomulagi við Styrktarfélagið Ás um að veita þeim þjón­ustu sem búa á fyrrnefndum deildum. Áhersla var lögð á það að þjónustan yrði með viðlíka hætti og gerðist hjá öðrum þeim sem hafa miklar stuðningsþarfir í daglegu lífi og njóta þjón­ustu á vegum sveitarfélaga eða annarra þjónustuaðila. Jafnframt yrðu sjálfsögð mannréttindi þessa hóps að veruleika með því að íbúarnir flyttust formlega frá sjúkrahúsi í almenn félags­leg úrræði.
    Með samkomulagi Landspítala og Styrktarfélagsins Áss fylgdi viljayfirlýsing ráðuneyti­sins um að það mundi hlutast til um að íbúarnir fengju aðgang húsnæði sem tæki mið af þeim viðmiðum sem fram koma í reglugerðum nr. 1054/2010. Í þessu sambandi var einkum horft til nýrra áherslna félags- og húsnæðismálaráðherra í húsnæðismálum þar sem m.a. yrði gert ráð fyrir því að í lögum yrðu ákvæði um stofnframlög til húsnæðis sjálfseignarstofnana og sveitarfélaga sem gætu nýst í uppbyggingu húsnæðis fyrir þennan hóp. Lög um almennar íbúðir, nr. 52/2016, hafa nýverið tekið gildi sem gefa aukið svigrúm til fjármögnunar íbúða sem hentað gætu fyrrgreindum hópi.
    Velferðarráðuneytið hefur undanfarin missiri átt viðræður við Ás styrktarfélag og fleiri aðila um aðkomu að þessu verkefni en enn hefur ekki fengist niðurstaða í málið.
    Það er von ráðuneytisins að framtíðarskipan húsnæðismála íbúa á Kópavogsbraut 5a og 5c skýrist á næstu vikum þannig að framtíðarbúseta íbúa verði tryggð.