Ferill 869. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1666 — 869. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um kostnað af rýmkun réttar til heimilisuppbótar.
Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.
Hver yrði aukinn kostnaður ríkissjóðs af almannatryggingakerfinu ef heimilisuppbót skv. 8. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, yrði ekki einungis greidd einstaklingum sem standa einir að heimilisrekstri heldur hverjum þeim sem nýtur tekjutryggingar skv. 22. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, í réttu hlutfalli við rétt hvers og eins til tekjutryggingar?
Skriflegt svar óskast.