Ferill 876. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.

Þingskjal 1735  —  876. mál.
Breytingartillaga.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um heimild til handa Landsneti hf. til að reisa og reka 220 kV raflínur frá Kröflustöð að Þeistareykjavirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka í Norðurþingi.

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.

    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Pál Þórhallsson frá forsætisráðuneyti, Ólaf Þröst Stefánsson og Bergþóru Kristjánsdóttur frá Fjöreggi, félagi um náttúruvernd og heilbrigt umhverfi í Mývatnssveit, Hafstein Þór Hauksson dósent við Háskóla Íslands, Nils Gústavsson, Sverri Jan Norðfjörð og Guðjón Axel Guðjónsson frá Landsneti, Önnu G. Sverrisdóttur, Guðmund Inga Guðbrandsson og Sif Konráðsdóttur frá Landvernd, Garðar Garðarsson fyrir hönd Norðurþings, Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ásdísi Hlökk Theó­dórsdóttur og Birnu Björk Árnadóttur frá Skipulagsstofnun, Jón Óskar Pétursson frá Skútu­staðahreppi, Írisi Bjargmundsdóttur, Sigríði Svönu Helgadóttur, Írisi Bjargmundsdóttur og Steinunni Fjólu Sigurðardóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Dagbjörtu Jónsdóttur frá Þingeyjarsveit og Aagot Vigdísi Óskarsdóttur, Fannar Frey Ívarsson, Kees Bastmeijer, Ragnar Tómas Árnason, Oddnýju Mjöll Arnardóttur og Ólaf Valsson. Nefndinni bárust um­sagnir við málið frá Aagot Vigdísi Óskarsdóttur, Kees Bastmeijer, Landvernd, Ólafi Valssyni og úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.
    Með lögum nr. 41/2013 var ráðherra veitt heimild til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka í Norðurþingi. Fyrir þann tíma hafði verið unnið að atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum um langt skeið. Í kjölfar þess að fulltrúar þýska fyrir­tækisins PCC SE lýstu áhuga á að reka kísilmálmbræðslu á Bakka undirrituðu ríkisstjórnin og sveitarfélög á svæðinu viljayfirlýsingu um samstarf á sviði orkunýtingar og uppbyggingar innviða. Ljóst varð að ráðast þyrfti í mikla uppbyggingu innviða og voru framangreind lög því samþykkt á Alþingi. Þá gerði íslenska ríkið fjárfestingarsamning við PCC SE og við PCC BakkiSilicon hf. auk þess sem gerðir hafa verið samningar um sölu og flutning raforku við annars vegar Landsvirkjun og hins vegar Landsnet.
    PCC BakkiSilicon hf. hefur nú hafið byggingu kísilvers í landi Bakka við Húsavík og er áætlað að framleiðsla hefjist þar haustið 2017. Landsnet sótti um framkvæmdaleyfi til hlutað­eigandi sveitarfélaga til að reisa raflínur svo unnt yrði að fullnægja þörfum verksmiðjunnar. Umhverfismati vegna línulagnanna lauk árið 2010 og er gert ráð fyrir þeim í svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum 2007–2025 og í aðalskipulagi sveitarfélaganna Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Skútustaðarhrepps. Að auki hefur verið fjallað um og lagt mat á umhverf­isáhrif flutningsvirkjanna í fleiri ferlum líkt og fram kemur í athugasemdum við frumvarpið.
    Framkvæmdaleyfi fyrir línulagnirnar voru voru gefin út í apríl og júní 2016. Útgáfa leyf­anna var síðar kærð og í júní og ágúst á þessu ári komst úrskurðarnefnd umhverfis- og auð­lindamála að þeirri niðurstöðu að framkvæmdir við línulagnir skyldi stöðva á meðan málið yrði tekið til meðferðar fyrir nefndinni. Almennt gilda lög ekki um atburði sem áttu sér stað fyrir gildistöku þeirra. Í nóvember 2015 tóku ný náttúruverndarlög gildi en í framangreindum úrskurðum var vísað til þeirra og stöðu framkvæmdaleyfa gagnvart þeim þó svo að lögin hafi verið sett þegar allt það ferli sem að framan er getið var yfirstaðið.
    Úrskurðirnir setja framvindu málsins í mikið uppnám og það er mat þeirra sem koma að málum að sveitarfélög, fyrirtæki og opinberir aðilar verði fyrir verulegu fjárhagstjóni. Nú þegar hefur stöðvun framkvæmda við línulagnir kostað Landsnet tugi milljóna króna og gera má ráð fyrir enn frekara tjóni fyrirtækisins verði tafirnar meiri. Þá hefur sveitarfélagið Norð­urþing lagt í verulega fjárfestingu í innviðum vegna verkefnisins og tafir vegna framkvæmd­anna munu leiða til þess að það fær ekki rentu af þeim auk þess sem það verður fyrir beinum og óbeinum tekjumissi. Önnur sveitarfélög verða einnig fyrir tjóni vegna tafanna, þ.e. vegna seinkunar á útsvarstekjum og tekjum vegna fasteignagjalda auk þess sem þau hafa jafnframt fjárfest í innviðum vegna verkefnisins. Fjárfesting PCC BakkiSilicon hf. nemur hátt í 40 milljörðum kr. sem að hluta er fjármögnuð af íslenskum lífeyrissjóðum. Auk þess hefur Vegagerðin fest mikið fé í göngum og vegtengingu milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarsvæðis­ins á Bakka.
    Í frumvarpi þessu er lagt til að Landsnet fái með sérlögum heimild til að reisa og reka raf­línur frá Kröflustöð að Þeistareykjarvirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka. Sett eru þau skil­yrði að Landsnet fari að sömu skilmálum og mælt er fyrir um í framkvæmdaleyfum sveitar­félaganna og eru talin upp í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins. Með öðrum orðum er frumvarpið samhljóða gildandi skipulagsáætlunum sveitarfélaganna. Í 2. gr. frumvarpsins felst að þau framkvæmdaleyfi sem þegar hafa verið gefin út falla úr gildi og í 2. mgr. sömu greinar felst að umrædd sveitarfélög fara með eftirlit með framkvæmdunum og hafa þær heimildir sem kveðið er á um í skipulagslögum og reglugerð um framkvæmdaleyfi. Þá er í 3. gr. kveðið á um að ákvæði til bráðabirgða bætist við við náttúruverndarlög þess efnis að 37. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, gildi um útgáfu leyfa til framkvæmda ef mat á umhverfisáhrifum hefur legið fyrir fyrir gildistöku laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.
    Í fylgiskjali með frumvarpinu er áskorun sveitarstjórna Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveitar og Norðurþings. Þar er lýst þungum áhyggjum af stöðu mála og farið fram á að ríkisstjórnin eða Alþingi grípi til ráðstafana til að leysa hnútinn, enda verði stefnu hvers sveitarfélags um landnotkun framfylgt. Fram kemur í frumvarpinu og við meðferð málsins hjá nefndinni að samráð hafi verið haft milli aðila áður en frumvarpið var lagt fram og hafi í þaula verið leitað leiða til að miðla málum. Sú vinna gekk ekki sem skyldi og talið er að ef breyta á línulögnum þurfi að breyta skipulagsáætlunum auk þess sem Landsnet þurfi að undirgangast mat á um­hverfisáhrifum að nýju með tilheyrandi töfum.
    Eins og áður er getið hefur undirbúningur að atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi staðið yfir í fleiri ár, fyrir liggja staðfestar skipulagsáætlanir auk þess sem undirritaðir hafa verið samningar milli aðila. Vegna áðurnefndrar lagabreytingar í nóvember 2015 breytast aðstæður og framkvæmdir sem voru langt komnar í undirbúningi raskast með ófyrirséðum hætti. Meiri hlutinn telur þá stöðu sem komin er upp vera einstaka og að ekki sé annað hægt en að bregðast við. Meiri hlutinn telur alla jafna æskilegt að unnið sé eftir gildandi lögum og reglum og að það frumvarp sem hér er til umfjöllunar geti tæplega verið hliðstæða síðar nema að hagsmunir séu mjög veigamiklir. Jafnframt bendir meiri hlutinn á svigrúm löggjaf­ans til lagasetningar og til að bregðast við telji hann að í óefni sé komið á tilteknu sviði og ef almannahagsmunir krefjast þess að höggvið sé á hnútinn.
    Meiri hlutinn leggur til breytingu á 3. gr. frumvarpsins í því skyni að takmarka gildistíma laganna og því skuli fara eftir nýrri náttúruverndarlögum um leyfi sem veitt eru eftir 31. desember 2017.     Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Við 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þetta á þó ekki við um leyfi sem veitt eru eftir 31. desember 2017.

    Ásmundur Friðriksson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 29. september 2016.

Jón Gunnarsson,
form., frsm.
Haraldur Benediktsson. Ásmundur Friðriksson.
Páll Jóhann Pálsson. Höskuldur Þórhallsson. Þórunn Egilsdóttir.