Ferill 854. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1742  —  854. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.

Frá atvinnuveganefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ernu Jónsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Jakob Frímann Magnússon, talsmann íslensks tónlistariðnaðar.
    Frumvarpið byggist á sömu hugmyndafræði og lög um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi sem hafa verið liður í eflingu kvikmyndaiðnaðar á Íslandi á undanförnum árum. Með frumvarpinu er lagt til að unnt verði að sækja um endurgreiðslu til iðnaðarráðuneytisins á hluta þess kostnaðar sem fellur til við hljóðritun á tónlist hér á landi sem hefur verið gefin út og er aðgengileg almenningi. Ef 80% kostnaðar hefur fallið til hér á landi verður heimilt að endurgreiða allt að 25% af þeim kostnaði sem til fellur á EES- svæðinu verði frumvarpið að lögum.
    Fram kom við umfjöllun um málið að þetta baráttumál tónlistarmanna sé brýnt þar sem hljóðritun hafi stórlega minnkað hér á landi. Verði frumvarpið að lögum mundi Ísland njóta jákvæðrar sérstöðu. Nefndin telur að um mikið framfaramál sé að ræða.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Lilja Rafney Magnúsdóttir ritar undir álit þetta með fyrirvara.
    Jón Gunnarsson og Björt Ólafsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Kristján L. Möller var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 3. október 2016.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
1. varaform., með fyrirvara.
Þórunn Egilsdóttir,
frsm.
Haraldur Benediktsson.
Ásmundur Friðriksson. Kristján L. Möller. Páll Jóhann Pálsson.
Líneik Anna Sævarsdóttir.