Ferill 869. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1745 — 869. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni um kostnað af rýmkun réttar til heimilisuppbótar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver yrði aukinn kostnaður ríkissjóðs af almannatryggingakerfinu ef heimilisuppbót skv. 8. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, yrði ekki einungis greidd einstaklingum sem standa einir að heimilisrekstri heldur hverjum þeim sem nýtur tekjutryggingar skv. 22. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, í réttu hlutfalli við rétt hvers og eins til tekjutryggingar?
Allir þeir sem eiga rétt á ellilífeyri eða örorkulífeyri og hafa tekjur undir tilteknum mörkum eiga rétt á svokallaðri tekjutryggingu án tillits til þess hvort þeir haldi einir heimili eða búi með öðrum. Heimilisuppbót er hins vegar eingöngu greidd þeim sem halda einir heimili. Þá er heimilt að greiða til viðbótar sérstaka uppbót til framfærslu ef heildartekjur lífeyrisþegans eru undir tilteknu viðmiði. Viðmiðin eru mishá eftir því hvort lífeyrisþegi heldur einn heimili (246.902 kr./mán.) eða býr með öðrum (212.776 kr./mán.) en munurinn á þessum fjárhæðum helgast af greiðslu heimilisuppbótar til þeirra sem halda heimili einir. Ef þannig yrði gert ráð fyrir að allir þeir sem eiga rétt á tekjutryggingu ættu jafnframt rétt á heimilisuppbót en þannig að viðmiðið vegna framfærsluuppbótar fyrir þá sem búa með öðrum haldist óbreytt er áætlað að kostnaðaraukinn yrði samtals 8.843 millj. kr. á ári. Sé hins vegar jafnframt gert ráð fyrir að hærra viðmiðið vegna framfærsluuppbótar gildi einnig fyrir lífeyrisþega sem búa með öðrum má áætla að kostnaðaraukinn yrði samtals 10.385 millj. kr. á ári.