Ferill 833. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1750  —  833. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um álagningu bifreiðagjalds á landbúnaðarvélar.

    Hinn 24. ágúst 2016 lagði Jóhanna María Sigmundsdóttir, 7. þingmaður Norðvesturkjör­dæmis, fram fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra um álagningu bifreiðagjalds á land­búnaðarvélar. Fyrirspurnin er í fjórum liðum.
    Rétt er að gera stuttlega grein fyrir hvernig efni fyrirspurnarinnar var afmarkað við vinnslu svarsins. Fyrirspurnin varðar álagningu bifreiðagjalds á landbúnaðarvélar. Beina efnislega afmörkun hugtaksins landbúnaðarvél er hvorki að finna í lögum frá Alþingi né stjórnvalds­fyrirmælum. Samkvæmt íslenskri orðabók nær hugtakið landbúnaður til nytjajurta- og/eða alidýraræktar sem atvinnugreinar. Lög nr. 39/1988, um bifreiðagjald, ná til bifreiða, þ.e. vél­knúinna ökutækja, sem uppfylla einhver af tilteknum skilyrðum. Því er ljóst að fyrirspurnin snýr að vélknúnum ökutækjum sem eru nýtt við nytjajurta- og/eða alidýrarækt í atvinnuskyni. Í viðauka II við reglugerð nr. 267/1993 um notkun erlendra ökutækja kemur fram í umfjöllun um ökutæki frá Ítalíu að landbúnaðarvélar, svo sem landbúnaðardráttarvélar, eftirvagnar þeirra og öll önnur ökutæki sem hönnuð eru sérstaklega til nota við landbúnaðarstörf, séu háð ákveðnu eftirliti við komu til landsins hvað ábyrgðartryggingar varðar. Við vinnslu svarsins var ljóst að ef litið yrði svo á að fyrirspurnin varðaði ökutæki sem eru sérstaklega hönnuð til nota við landbúnaðarstörf væri efni hennar þrengt um of enda eru vélknúin ökutæki sem notuð eru við slík störf, t.d. dráttarvélar, fjórhjól, sexhjól og hefðbundnar bif­reiðar, jafnframt hönnuð til nota og notuð í öðrum atvinnugreinum. Nær ógerlegt er að leggja mat á í hvaða mæli slík ökutæki eru notuð við landbúnaðarstörf. Hugtakið dráttarvél er skilgreint í 2. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, á þann hátt að um sé að ræða vélknúið ökutæki, sem aðallega er hannað til að draga annað ökutæki og draga, ýta, flytja og knýja vinnutæki og er á hjólum og/eða beltum. Almennt má telja ljóst að dráttarvélar eru í miklum mæli notaðar til að draga, ýta, flytja og knýja tæki sem sérstaklega eru hönnuð fyrir landbúnaðar­störf. Af þessum sökum afmarkast svarið við bifreiðagjöld á dráttarvélar.
    Að framangreindu sögðu eru spurningar þingmannsins ásamt svörum ráðherra eftirfarandi:

     1.      Hvaða forsendur eru fyrir álagningu bifreiðagjalds á landbúnaðarvélar?
    Um álagningu bifreiðagjalds fer samkvæmt lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald. Samkvæmt ákvæði 1. mgr. 1. gr. laganna skal greiða bifreiðagjald af bifreiðum sem skráðar eru hér á landi. Með gjaldskyldri bifreið er átt við vélknúið ökutæki sem uppfyllir eitt eða fleiri tiltekinna skilyrða. Skilyrðin eru eftirfarandi:
     a.      Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga og er á fjórum hjólum eða fleiri, eða á þremur hjólum, og er 400 kg að eigin þyngd eða meira og hannað er til hraðari aksturs en 30 km á klukkustund eða aka má svo hratt án verulegra breytinga.
     b.      Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til að draga annað ökutæki og hannað er til hraðari aksturs en 30 km á klukkustund.
     c.      Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga eða til að draga annað ökutæki og er búið beltum og eftir atvikum stýrimeiðum/stýrihjólum og er 400 kg að eigin þyngd eða meira.
     d.      Bifhjól sem hvorki telst bifreið né torfærutæki, er aðallega ætlað til fólks- eða vöruflutn­inga, er á tveimur hjólum, með eða án hliðarvagns, eða á þremur eða fleiri hjólum og er 400 kg að eigin þyngd eða meira.
    Af 1. gr. laga nr. 39/1988 leiðir að bifreiðagjald er lagt á skráð ökutæki. Með skráðu öku­tæki er átt við ökutæki sem eru skráð á ökutækjaskrá Samgöngustofu. Um skráningu dráttar­véla á ökutækjaskrá fer samkvæmt ákvæðum umferðarlaga, nr. 50/1987, og stjórnvaldsfyrir­mæla sem sett hafa verið á grundvelli þeirra. Um dráttarvélar gildir sú meginregla að þær skuli skráðar áður en þær eru teknar í notkun. Í 60. gr. laga nr. 50/1987 er kveðið á um að ráðherra setji reglugerðir um gerð ökutækja og búnað þeirra og skráningu. Þannig fer um skráningarskyldu dráttarvéla samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 751/2003 um skráningu ökutækja. Við skráningu dráttarvéla er gefið út skráningarskírteini skv. 5. gr. reglugerðar nr. 751/2003 en skírteinið þarf að vera í samræmi við tilskipanir 1999/37/EB og 2003/127/EB. Samkvæmt J-lið í lið II.6 í I. viðauka við tilskipun 2003/127/EB skal flokkunar ökutækis getið í skráningarskírteini. Í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja er kveðið á um flokkun og skilgreiningu ökutækja, þ. á m. dráttarvéla. Þá er í reglugerðinni kveðið á um eiginleika og búnað ökutækja. Í lið 01.30 eru dráttarvélar skilgreindar á þann hátt að þær séu vélknúin ökutæki sem aðallega eru hönnuð til að draga annað ökutæki og draga, ýta, flytja og knýja vinnutæki, er á hjólum og/eða beltum. Dráttarvélum er svo skipt í fimm flokka. Með 1. gr. reglugerðar nr. 192/2015, um breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, var gerð breyting á flokkaskiptingum dráttarvéla. Við þessa breytingu bættist sérstakur undirflokkur við 1. gr. reglugerðarinnar sem fékk nafnið Dráttarvél V (T5). Í reglugerðinni orðast skilgreining undirflokksins svo: Dráttarvél sem hönnuð er til hraðari aksturs en 40 km/klst. Eftir að breytingin gekk í gegn hóf Samgöngustofa að nýskrá dráttar­vélar í undirflokkinn þegar skilyrði töldust uppfyllt til slíkrar skráningar. Í flokkinn voru þannig skráðar bæði hefðbundnar dráttarvélar og kornskurðarvélar.
    Undirflokkamerking skráningarskyldra ökutækja er færð á tveimur svæðum í ökutækjaskrá Samgöngustofu. Annað svæðið ber heitið EUGROUP, sem er samræmt ESB-skráningar­svæði, en hitt svæðið ber heitið VEHIGROUP og er notað til að framfylgja lögum nr. 39/1988. Við álagningu bifreiðagjalds á árinu 2016 komu fram athugasemdir frá eigendum dráttarvéla sem töldu að vélarnar ættu að vera undanþegnar gjaldinu. Við nánari skoðun kom í ljós að samræmda ESB-merkingin hafði einnig verið færð í VEHIGROUP-svæðið. Í fram­haldinu leiðrétti Samgöngustofa misskráninguna og í kjölfarið féll þegar álagt bifreiðagjald á dráttarvélar niður. Við athugun sem gerð var 20. september sl. kom í ljós að enn voru 23 dráttarvélar rangt skráðar. Samgöngustofu var gert viðvart um vélarnar og eigendur þeirra og voru skráningarnar lagfærðar 23. september 2016. Öll þegar álögð bifreiðagjöld á dráttar­vélar hafa því verið felld niður og ofgreiðslur ásamt inneignarvöxtum eru lausar til útborg­unar eða skuldajöfnunar hjá innheimtumönnum ríkisins.

     2.      Er aðeins horft til stærðar kassa (km/klst.) við útreikning gjaldsins eða einnig til notkun­ar, svo sem hvort vélin er notuð annars staðar en á vegslóðum, túnum o.þ.h. á landar­eign eiganda?
    Með samþykkt laga nr. 156/2010 voru gerðar umtalsverðar breytingar á álagningu bif­reiðagjalds. Breytingarnar eiga rót sína að rekja til tillagna sem koma fram í skýrslu starfs­hóps þáverandi fjármálaráðherra um heildarstefnumótun um skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Eftir breytingarnar er meginregla laga nr. 39/1988 sú að bifreiðagjald miðast við skráða losun koltvísýrings (CO2) viðkomandi ökutækis, þ.e. skráða losun í grömmum á hvern ekinn kílómetra. Ef upplýsingar um skráða losun koltvísýrings viðkomandi ökutækis liggja hins vegar ekki fyrir er losun ökutækis ákvörðuð sem 0,12 grömm á hvert kíló skráðrar eigin þyngdar ökutækisins að viðbættum 50 grömmum af koltvísýringi. Af framangreindu leiðir að bifreiðagjald er aðeins reiknað út miðað við skráða losun koltvísýrings (CO2) ökutækis. Ef upplýsingar um skráða losun liggja ekki fyrir er gjaldið reiknað út miðað við fastákveðna losun og eigin þyngd. Engar lagalegar forsendur eru fyrir því reikna bifreiðagjald út miðað við hámarkshraða eða notkun ökutækis.
    Hins vegar er það svo að bifreiðagjald er lagt á skráð ökutæki sem uppfylla skilyrði 2. mgr. 1. gr. laga nr. 39/1988 eins og áður hefur komið fram. Sé ökutæki óskráð er gjaldið því ekki lagt á það. Not ökutækis geta haft áhrif við ákvarðanatöku um skráningu þess og má í því samhengi t.d. benda á að skv. 2. mgr. 63. gr. laga nr. 50/1987 getur ráðherra kveðið á um undanþágu frá skráningu ökutækis í reglugerð sé það ætlað til aksturs utan almennrar umferðar. Við ákvörðunartöku um álagningu bifreiðagjalds er hins vegar aðeins litið til þess hvort ökutæki sé skráð og upplýsinga sem koma fram í skráningargögnum þess en ekkert tillit tekið til ætlaðra nota.

     3.      Hver er heildarupphæð bifreiðagjalds á nýskráðar landbúnaðarvélar ár hvert?
    Af svari við 1. lið fyrirspurnarinnar leiðir að skráning dráttarvéla í ökutækjaskrá hefur að fullu verið leiðrétt og því nemur heildarupphæð bifreiðagjalds á nýskráðar dráttarvélar árin 2015 og 2016 0 kr.

     4.      Stendur til að endurskoða álagningu bifreiðagjalds á landbúnaðarvélar?
    Hinn 5. febrúar 2016 skipaði ráðherra starfshóp um endurskoðun skattlagningar ökutækja og eldsneytis. Endurskoðunin lýtur í meginatriðum að því að rannsaka núverandi fyrirkomu­lag og framkvæmd skattlagningar ökutækja og eldsneytis, leggja til breytingar á gildandi lögum og gera tillögu að framtíðarstefnu stjórnvalda í þessum efnum. Starfshópnum var falið að hafa eftirfarandi markmið að leiðarljósi í vinnu sinni: Einfalt og réttlátt skattkerfi, sam­ræmi og skilvirkni skattkerfisins, orkusparnað og aukna notkun innlendra orkugjafa, að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og skaðlegra efna í útblæstri ökutækja, mótun framtíðarsýnar um hlutdeild vistvænna ökutækja í skatttekjum ríkisins, að draga úr skattlagningu við öflun og eign á ökutækjum, að tryggja ríkissjóði nægar skatttekjur m.a. til að standa undir upp­byggingu og viðhaldi samgöngumannvirkja og að tryggja að fyrirkomulag skattlagningarinn­ar samræmist ákvæðum nýrra laga um opinber fjármál. Starfshópurinn er enn að störfum.
    Öll löggjöf er varðar skattlagningu ökutækja er undir í vinnu starfshópsins, þar á meðal lög um bifreiðagjald. Rétt er að hafa í huga að vinna starfshópsins tekur við af vinnu starfs­hóps sem skilaði þáverandi fjármálaráðherra skýrslu árið 2008 með heitinu Heildarstefnumót­un um skattlagningu ökutækja og eldsneytis sem birt er á vef ráðuneytisins. Á grundvelli til­lagna starfshópsins frá 2008 var vörugjald á dráttarvélar alfarið fellt niður. Hins vegar er rétt að hafa í huga að íslensk stjórnvöld hafa nýverið tekist á hendur viðamiklar skuldbindingar í loftslagsmálum.