Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1764  —  384. mál.

2. umræða.


Framhaldsnefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, lögum um Seðlabanka Íslands og lögum um neytendalán (erlend lán, varúðarreglur).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Í breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar var lagt til að neytandi skyldi jafnan eiga rétt á að breyta eftirstöðvum láns sem tengdist erlendum gjaldmiðlum í krónur. Lánveitandi skyldi tvisvar á ári kanna hvort neytandi uppfyllti skilyrði 10. gr. a. Kæmi í ljós að neytandi uppfyllti ekki lengur skilyrði 10. gr. a skyldi eftirstöðvum láns breytt í krónur.
    Því sjónarmiði var lýst í nefndinni að óþarft væri að kveða á um skyldu til að breyta eftir­stöðvum fasteignaláns sem tengist erlendum gjaldmiðlum í íslenskar krónur. Réttindi neytenda væru nægjanlega tryggð með því að heimila þeim að breyta ávallt eftirstöðvunum í íslenskar krónur. Sá réttur skapaði einnig hvata fyrir lánveitendur til að fara varlega í slíkum lánveitingum sem treysti fjármálastöðugleika.
    Með vísan til þessara sjónarmiða leggur nefndin til að hvorki verði kveðið á um að lán­veitandi kanni reglulega hvort neytandi uppfyllti skilyrði 10. gr. a né að eftirstöðvum fasteignaláns sem tengist erlendum gjaldmiðlum skuli breytt í krónur ef neytandi uppfyllir ekki lengur skilyrði 10. gr. a.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Efnismálsgrein 4. tölul. brtt. á þskj. 1719 orðist svo:
    Neytandi á ávallt rétt á að breyta eftirstöðvum fasteignaláns sem tengist erlendum gjaldmiðlum í íslenskar krónur. Sé ekki mælt fyrir á annan veg í lánssamningi skal miða við nýjasta skráða opinbera viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands.

    Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Anna Margrét Guðjónsdóttir og Guðmundur Steingrímsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Birgitta Jónsdóttir sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi og styður álit þetta.

Alþingi, 7. október 2016.

Frosti Sigurjónsson,
form., frsm.
Anna Margrét Guðjónsdóttir. Guðmundur Steingrímsson.
Katrín Jakobsdóttir,
með fyrirvara.
Líneik Anna Sævarsdóttir. Óli Björn Kárason.
Willum Þór Þórsson.