Ferill 897. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1792 — 897. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fasteignir Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvaða fasteignir úr eigu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli gengu til íslenska ríkisins eftir að starfsemi varnarliðsins var lögð niður árið 2006?
2. Hverjar þessara fasteigna hafa verið seldar og hvenær, hverjir voru kaupendur eignanna og hvert var söluverðið?
3. Hvernig hefur verið staðið að verðmati og verðlagningu fasteignanna sem áður tilheyrðu varnarliðinu?
4. Hefur stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco, fjallað um sölu fasteignanna?
5. Hefur seljandi fengið kaupverð seldra fasteigna greitt að fullu? Ef ekki, hve miklar eru útistandandi skuldir?
6. Hvert varð tjón Kadeco vegna gjaldþrots Base ehf. árið 2010 sem keypt hafði fasteignir af félaginu?
7. Hvernig skiptist húsnæði í eigu Kadeco í atvinnuhúsnæði og iðnaðarhúsnæði miðað við fermetrafjölda?
8. Hver er meðalleiga á fermetra annars vegar atvinnuhúsnæðis og hins vegar iðnaðarhúsnæðis Kadeco árin 2012–2016?
Skriflegt svar óskast.