Ferill 838. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1795 — 838. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um verksmiðjubú.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er skilgreiningin á verksmiðjubúi í landbúnaði?
Hugtakið verksmiðjubúskapur er ekki skilgreint í íslenskum lögum eða reglum. Í I. viðauka reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun og I. viðauka við reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit eru starfsstöðvar flokkaðar. Meðal starfsstöðva sem eru taldar upp í viðaukunum eru stöðvar þar sem „þauleldi“ alifugla eða svína fer fram, með fleiri en:
a. 40.000 stæði fyrir alifugla,
b. 2.000 stæði fyrir alisvín (yfir 30 kg) eða
c. 750 stæði fyrir gyltur.
Hugtakið þauleldi er þýðing á hugtakinu „intensive rearing“. Hugtakið er að finna í tilskipun ráðsins 96/61/EB um samþættar ráðstafanir til að fyrirbyggja og takmarka mengun og tilskipun 2008/1/EB með sama heiti. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB um losun í iðnaði kemur í stað tilskipunar 2008/1/EB. Í henni er að finna sömu viðmið um þauleldi alifugla eða svína. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er ætlunin að leggja fram frumvarp til innleiðingar á þeirri tilskipun á næsta löggjafarþingi.