Ferill 839. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1814  —  839. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur um innfluttar landbúnaðarafurðir.


     1.      Eru sömu kröfur gerðar til innfluttra landbúnaðarafurða og innlendra, allt frá umönnun og aðbúnaði dýra til framleiðsluferlis afurðanna?
    Í öllum aðalatriðum eru sömu kröfur gerðar. Varðandi umönnun og aðbúnað dýra hefur íslenska dýravelferðarlöggjöfin nýlega verið endurnýjuð með nýjum lögum og reglugerðum og telst nú sambærileg við kröfur í okkar nágrannalöndum. Þó erum við enn á eftir þeim, en framleiðendur hafa aðlögunartíma til endurbóta. Opinberar stofnanir í hverju landi fyrir sig sjá síðan um að hafa eftirlit með að löggjöfinni sé framfylgt. Í ríkjum Evrópusambandsins hefur sérstök eftirlitsstofnun, Food and Veterinary Office – FVO, eftirlit með opinberum stofnunum í aðildarlöndunum hvað þetta varðar. Á Íslandi fer Matvælastofnun með þetta eftirlit, en dýravelferðarlöggjöfin heyrir ekki undir EES-samninginn.
    Hvað varðar framleiðsluferli afurðanna eru lög og reglur um framleiðslu landbúnaðaraf­urða þær sömu á Íslandi og á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Í ríkjum Evrópusambandsins fer FVO með eftirlit með opinberum stofnunum í aðildarlöndunum hvað þetta varðar. Sam­bærileg stofnun, EFTA Surveillance Authority – ESA, hefur eftirlit með opinberum stofnun­um í Noregi og á Íslandi. Landbúnaðarafurðir frá ríkjum utan EES þurfa að koma frá svæð­um/ríkjum og starfsstöðvum sem viðurkennd eru af Evrópusambandinu. Landbúnaðarafurðir frá þessum ríkjum þurfa að fara í gegnum sérstakt landamæraeftirlit við innflutning til Íslands.

     2.      Er uppruni innfluttra landbúnaðarafurða sannreyndur áður en þær eru seldar hérlendis, þ.e. að afurðirnar séu raunverulega upprunnar í því landi sem þær eru sagðar koma frá?
    Innflutningseftirlit með landbúnaðarafurðum er með tvennum hætti. Annars vegar er eftir­lit með afurðum frá ríkjum innan EES og hins vegar frá þriðju ríkjum, þ.e. ríkjum utan EES.
    Þegar landbúnaðarafurðir eru fluttar frá ríkjum EES er gengið úr skugga um að þær eigi uppruna sinn í viðurkenndum starfsstöðvum sem hafa leyfi til flutnings afurða milli ríkja á svæðinu. Þær afurðastöðvar eru undir eftirliti viðeigandi opinberrar stofnunar í upprunaland­inu. Í ríkjum Evrópusambandsins hefur fyrrnefnda eftirlitsstofnunin, FVO, eftirlit með opin­berum stofnunum í aðildarlöndunum hvað þetta varðar á sama hátt og ESA hefur eftirlit með opinberum stofnunum í Noregi og á Íslandi. Sambærileg lög og reglur gilda um framleiðslu landbúnaðarafurða á Íslandi og EES. Innflytjendur á Íslandi þurfa að fylla út eyðublað 1 þar sem greina þarf frá bæði upprunalandi og útflutningslandi. Slíkar upplýsingar eru síðan bornar saman við önnur gögn sem fylgja sendingunni til staðfestingar uppruna.
    Þegar um hrátt kjöt er að ræða er uppruni kjötsins borinn saman við lista yfir afurðastöðv­ar sem innflytjendur hafa heimild til að kaupa hrátt kjöt frá samkvæmt íslenskri löggjöf.
    Landbúnaðarafurðir frá ríkjum utan EES þurfa að koma frá svæðum/ríkjum og starfsstöðv­um sem viðurkennd eru af Evrópusambandinu. Landbúnaðarafurðir frá ríkjum utan Evrópu­sambandsins þurfa að fara í gegnum sérstakt landamæraeftirlit við innflutning til Íslands.
Neðanmálsgrein: 1
1     Sjá:
gaeda.mast.is/focal/qmammast.nsf/0/9d2f529abfa354d70025793e0051735e/$FILE/EBL-092_TilkynningInnflutningurfrarikjuminnanees.pdf