Ferill 880. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1829  —  880. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birgi Ármannssyni um áhrif afnáms almenns vörugjalds og tolla á tekjur ríkisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver eru áætluð áhrif niðurfellingar almenns vörugjalds á vörur í 600 tollskrárnúmer­um frá 1. janúar 2015 á tekjur ríkisins?
     2.      Hver eru áætluð áhrif niðurfellingar tolla á vörur í 320 tollskrárnúmerum frá 1. janúar 2016 á tekjur ríkisins?
     3.      Hver eru áætluð áhrif niðurfellingar tolla á vörur í 1.250 tollskrárnúmerum frá 1. janúar 2017 á tekjur ríkisins?
    Svarið óskast sundurliðað eftir árum og auk beinnar tekjulækkunar verði hliðaráhrif á virðisaukaskatt metin.


    1. Heildaráhrif niðurfellingar almenns vörugjalds í ársbyrjun 2015 voru talin vera um 7.700 millj. kr. til lækkunar á tekjum ríkissjóðs árið 2015. Upphæðin hefur ekki verið endur­metin en ekki verður annað séð en að hún hafi verið nokkuð raunhæf.

Áætluð áhrif almennra vörugjalda á tekjur ríkissjóðs (millj. kr.).

Áætlað tekjutap á verðlagi 2015
Bein áhrif -6.500
Óbein áhrif (hliðaráhrif á virðisaukaskatt) -1.200
Samtals -7.700

    2. Heildaráhrif afnáms tolla af fatnaði og skóm í ársbyrjun 2016 eru talin vera um 2.000 millj. kr. til lækkunar á tekjum ríkissjóðs árið 2016. Um er að ræða endurmat á tekjuáhrifum frá því að frumvarp um afnám tolla var samþykkt á grundvelli endanlegra innflutningstalna fyrir árið 2015.

Áætluð áhrif niðurfellingar tolla á tekjur ríkissjóðs (millj. kr.).

Áætlað tekjutap á verðlagi 2016
Bein áhrif -1.600
Óbein áhrif (hliðaráhrif á virðisaukaskatt) -400
Samtals -2.000

    3. Heildaráhrif afnáms tolla af annarri vöru en matvöru í ársbyrjun 2017, leiðrétt fyrir afnámi tolla af fatnaði og skóm, eru talin vera um 3.000 millj. kr. til lækkunar á tekjum ríkis­sjóðs árið 2017. Um er að ræða endurmat á tekjuáhrifum frá því að frumvarp um afnám tolla var samþykkt á grundvelli endanlegra innflutningstalna fyrir árið 2015.

Áætluð áhrif niðurfellingar tolla á tekjur ríkissjóðs (millj. kr.).

Áætlað tekjutap á verðlagi 2017
Bein áhrif -2.400
Óbein áhrif (hliðaráhrif á virðisaukaskatt) -600
Samtals -3.000