Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 33  —  25. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um ónýttan persónuafslátt.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


    Hver var heildarupphæð ónýtts persónuafsláttar þeirra sem rétt áttu á persónuafslætti samkvæmt lögum um tekjuskatt árin 2013, 2014 og 2015 og hve margir einstaklingar áttu ónýttan persónuafslátt við lok hvers árs? Svar óskast sundurliðað eftir nefndum árum og eftirfarandi aldurshópum:
    16–20 ára,
    21–25 ára,
    26–35 ára,
    36–50 ára,
    51–66 ára,
    67 ára og eldri.


Skriflegt svar óskast.