Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 92 — 35. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um borgarastyrjöldina í Sýrlandi.
Frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.
1. Hver er afstaða íslenskra stjórnvalda til borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi og hvernig áforma þau að koma afstöðu sinni á framfæri?
2. Munu stjórnvöld beita sér með einhverjum hætti á alþjóðavettvangi vegna stríðsins í Sýrlandi?
3. Áforma stjórnvöld einhverjar ráðstafanir í þágu stríðshrjáðs almennings í Sýrlandi eða flóttamanna þaðan? Ef svo er, hvaða aðgerðir eru það og hvenær er þeirra að vænta?
Skriflegt svar óskast.