Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 136  —  79. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um þingnefnd um alþjóðlega fríverslunarsamninga.


Flm.: Katrín Jakobsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Orri Páll Jóhannsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir.


    Alþingi ályktar að kjósa nefnd skv. 32. gr. þingskapa til að fjalla um þá alþjóðlegu fríverslunarsamninga sem Ísland gæti á næstu árum orðið aðili að eða orðið fyrir áhrifum af. Í nefndinni verði sjö þingmenn, fulltrúar allra flokka sem sæti eiga á Alþingi. Nefndin starfi meðan stendur á svokölluðum TiSA-viðræðum um aukið frelsi í þjónustuviðskiptum og TTIP-viðræðum um fríverslun á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.

Greinargerð.

    Ísland tekur um þessar mundir þátt í svokölluðum TiSA-viðræðum (Trade in Services Agreement) en þar er um að ræða samningaviðræður 50 ríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um aukið frelsi í viðskiptum með þjónustu milli ríkja samningsaðila. Ísland er ekki beinn aðili að svokölluðum TTIP-umræðum (Transatlantic Trade and Investment Partnership) sem ætlað er að skila fríverslunarsamningi milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins en ljóst er að í gegnum aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu mun sá samningur hafa veruleg áhrif á íslenskt samfélag verði hann að veruleika enda ekki ólíklegt að EFTA-ríkin og þar með Ísland gangi inn í þann samning.

Inntak samninganna.
    TiSA-samningnum er ætlað að greiða fyrir viðskiptum með tiltekna þjónustu en áður höfðu slíkar viðræður farið fram innan WTO. Þá steyttu þær á skeri sem leiddi til þess að þessi 50 ríki tóku sig saman um slíkar viðræður. Í stuttu máli sagt munu þau ríki sem staðfesta samninginn skuldbinda sig til að veita þjónustuveitendum aðgang að mörkuðum sínum þvert á landamæri.
    TTIP-samningunum er ætlað að ná til umtalsverðrar fríverslunar og fjárfestinga milli ESB og Bandaríkjanna en töluvert hefur borið á milli samningsaðila. Meðal þess sem hefur verið umdeilt eru kröfur um umhverfisvernd og loftslagsmarkmið, lýðheilsusjónarmið og matvælaöryggi, sem og almenn neytendavernd. Mismunandi sjónarmið um réttindi verkafólks og vinnumarkaðslöggjöf hafa verið mjög umdeild, sem og áhrif á ýmsa innviði á borð við heilbrigðisþjónustu og menntakerfi. Þá eru mjög ólík sjónarmið uppi um skipulag fjármálakerfisins.
    Á heimasíðu utanríkisráðuneytisins má finna töluverða umfjöllun um TiSA-samningana en þar kemur fram að Ísland muni ekki takast á hendur skuldbindingar á sviðum heilbrigðistengdrar þjónustu, félagslegrar þjónustu eða menntamála. Hins vegar er vel þekkt úr slíkum samningum að skilgreiningar á þjónustu eru iðulega mjög þröngar og alþjóðleg stórfyrirtæki geta því komið að ýmissi stoðþjónustu í kringum þessar grunnstofnanir samfélagsins. Þá má ætla að tekist verði á um inntak skilgreininga á almannaþjónustu.

Leynd gagnrýnd.
    Almenningur, fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafa gagnrýnt þá leynd sem hvílt hefur yfir báðum þessum samningum. Wikileaks hafa birt fjölda skjala, bæði frá TiSA- og TTIP-viðræðunum, sem hafa valdið usla í opinberri umræðu og valdið því að stjórnvöld hafa verið hrakin til að birta sín gögn. Þannig birti ESB tilboð sitt í TiSA-viðræðunum árið 2014 ekki fyrr en eftir birtingar Wikileaks.

Almannahagsmunir.
    Töluverð gagnrýni hefur verið uppi á að almannahagsmunir séu fyrir borð bornir í báðum þessum samningum. Þannig hefur verið bent á að TiSA snúist fyrst og fremst um að draga úr regluverki í kringum hvers kyns þjónustu til að greiða fyrir viðskiptum, regluverki sem fyrst og fremst sé ætlað að verja almenning í viðkomandi löndum gegn hagsmunum stórfyrirtækja. Töluvert hefur verið rætt um hvaða áhrif slíkur samningur muni til dæmis hafa á þjónustu banka og annarra fjármálafyrirtækja, svo sem tryggingafélaga, fyrir hefðbundið atvinnulíf og almenning og eru áhyggjur uppi um að fyrst og fremst snúist TiSA um hagsmuni risafyrirtækja en ekki hagsmuni smærri fyrirtækja og einstaklinga.
    Ekki ósvipuð gagnrýni hefur verið höfð uppi gagnvart TTIP en þar óttast margir að réttindi vinnandi fólks verði skert og slakað verði stórlega á hvers kyns kröfum á sviði umhverfismála og matvælaöryggis. Þar hafa verið nefnd erfðabreytt matvæli, notkun skordýraeiturs og hvers kyns hormóna. Orkumál eru annar stór þáttur en talið er að þær hugmyndir sem hafa verið uppi á borðum í TTIP-viðræðum geti beinlínis unnið gegn Parísarsáttmálanum og öðrum alþjóðlegum samningum sem ætlað er að sporna gegn loftslagsbreytingum. Þá hafa verið uppi áhyggjur af áhrifum á fjármálageirann og afregluvæðingu hans.

Gerðardómar í deilum stórfyrirtækja og þjóðríkja.
    Það sem hvað harðast hefur verið gagnrýnt í umræðum um TTIP og TiSA eru yfirþjóðlegir gerðardómar sem ætlað er að úrskurða í deilum stórfyrirtækja við þjóðríki (Investor-State Dispute Settlement). Fram kemur á heimasíðu utanríkisráðuneytisins að slíkur dómstóll sé ekki hluti af TISA enda snúist samningurinn ekki um fjárfestingar. Samkvæmt gögnum sem birt hafa verið frá Wikileaks eru uppi annars konar hugmyndir um gerðardóma til að úrskurða í ágreiningsefnum. Hefðbundinn gerðardómur til að úrskurða um deilumál ríkja og fjárfesta (ISDS) var lengst af hluti af TTIP-viðræðunum en árið 2015 stakk ESB upp á annarri leið (Investment Court System). Efast hefur verið um lögmæti slíkrar leiðar og hafa bandarísk stjórnvöld talað fyrir því að hefðbundinn gerðardómur til að úrskurða um deilumál þjóðríkja og fjárfesta verði aftur settur á dagskrá.
    Mergurinn málsins er sá að enn eru þessi mál óútkljáð í samningaviðræðum aðila en ljóst er að gagnrýni á gerðardómsleiðina er þegar farin að hafa veruleg áhrif.
    Fordæmi eru fyrir slíkum gerðardómum í fríverslunarsamningum milli einstakra ríkja og fjölmörg dæmi eru um mál sem hafa gengið til slíkra dómstóla en samkvæmt gögnum Sameinuðu þjóðanna eru dæmi um á sjöunda hundrað slíkra mála í heiminum frá árinu 1987. 1
    Fæst slík mál ná eyrum fjölmiðla en nokkur hafa vakið talsverða athygli. Þar má nefna málsókn tóbaksfyrirtækisins Philip Morris sem fór í mál við Ástralíu og Úrúgvæ fyrir að breyta umbúðum á sígarettum og birta þar viðvaranir um skaðsemi tóbaks. Annað þekkt dæmi er málsókn bandaríska olíufyrirtækisins Occidental Petroleum gegn Ekvador sem vildi stöðva olíuleit fyrirtækisins af náttúruverndarsjónarmiðum en þar var Ekvador dæmt til að greiða olíufyrirtækinu háar skaðabætur.
    Ýmis dæmi eru um málsóknir stórfyrirtækja á hendur þjóðríkjum í Evrópu. Þannig fékk sænska fyrirtækið Vattenfall umtalsverðar skaðabætur eftir málsókn gegn þýska ríkinu sem herti umhverfisregluverk vegna kolavers í Hamborg en Vattenfall hefur meðal annars verið gagnrýnt fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður íbúakosningar sem haldin var 2013 í Berlín um hvort aftur ætti að koma veitukerfum borgarinnar í eigu almennings en þau voru einkavædd 1997. Vattenfall stendur nú í annarri málsókn við þýska ríkið eftir að þýsk stjórnvöld ákváðu að flýta lokun kjarnorkuvera eftir Fukushima-kjarnorkuslysið árið 2011. Búist er við að þetta stórfyrirtæki á sviði orku hljóti milljarða evra í skaðabætur.
    Hollenskt heilbrigðistryggingafélag hefur tvisvar sinnum farið í mál við slóvakísk stjórnvöld eftir að þau ákváðu að snúa við umfangsmikilli einkavæðingu heilbrigðiskerfisins. Félagið vann fyrra málið 2006 en tapaði því síðara 2012. Óvíst er hver úrslitin hefðu orðið ef þeir umfangsmiklu samningar um alþjóðleg þjónustuviðskipti (TTIP, TiSA) sem nú eru í undirbúningi hefðu orðið að veruleika.
    Óháður sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna (Alfred de Zayas) hefur bent á að yfirþjóðlegir gerðardómar grafi beinlínis undan fullveldi ríkja, lýðræðislegum réttindum borgaranna og réttarríkinu. Stjórnvöldum sé gert ókleift að taka sjálfstæðar ákvarðanir í þágu almannahagsmuna sem njóta lýðræðislegs stuðnings ef þær stangast á við hagsmuni stórfyrirtækja. Það stangist á við Mannréttindasáttmálann sem forgangsraði mannréttindum umfram sérhagsmuni. 2

Þörf fyrir upplýsta umræðu.
    Komi til þess að íslensk stjórnvöld samþykki annanhvorn þeirra samninga sem hér hafa verið til umræðu mun koma til kasta Alþingis að staðfesta þá. Þá er afar mikilvægt að fram hafi farið upplýst umræða um kosti og galla slíkra samninga í stað þess að Alþingi fái slíkan samning beint í hendur, jafnvel undir tímapressu. Enn fremur þyrfti að taka til málefnalegrar umfjöllunar hvort réttast væri að Ísland drægi sig út úr TiSA-viðræðunum og þá hugsanlega einnig að Ísland beitti sér gegn því á vettvangi EFTA að EFTA-ríkin yrðu aðilar að TTIP- samningnum. Þá er aukinheldur ljóst að með þeirri pólitísku þróun sem orðið hefur bæði vestanhafs og austan á undanförnum misserum kunna að vera skapast nýjar aðstæður við bæði þessi samningaborð.
    Samkvæmt heimasíðu utanríkisráðuneytisins á að upplýsa utanríkismálanefnd Alþingis um framgang mála í TiSA-viðræðunum. Samkvæmt upplýsingum Alþingis hefur það verið gert tvisvar sinnum frá árinu 2013. TTIP hefur aldrei verið til umræðu í utanríkismálanefnd á þessu sama tímabili. Hins vegar hafa þingmenn í Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES (þar sem ekki sitja fulltrúar allra flokka) fjallað um framgang TTIP-viðræðnanna 14 sinnum og um TiSA-viðræðurnar tvisvar á reglulegum fundum sínum frá árinu 2013. Það er því full þörf á að Alþingi gefi þessum málum meiri gaum og fulltrúar allra flokka sem sæti eiga á Alþingi fái tækifæri til að setja sig í smáatriðum inn í báða þessa samninga. Þar er um að ræða ríka almannahagsmuni og því nauðsynlegt að fulltrúar almennings taki slíkar ákvarðanir með bestu fáanlegar upplýsingar fyrir hendi.
Neðanmálsgrein: 1
1     investmentpolicyhub.unctad.org/Upload/ISDS%20Issues%20Note%202016.pdf
Neðanmálsgrein: 2
2     www.ohchr.org/EN/NewsEvents/Pages/DisplayNews.aspx?NewsID=16650&LangID=E