Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 144  —  45. mál.

                                  


Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um eftirlitsstofnanir.


     1.      Hvaða stofnanir ráðuneytisins sinna eftirliti, sbr. 1. gr. laga nr. 27/1999, um opinberar eftirlitsreglur?
    Þær stofnanir umhverfis- og auðlindaráðuneytis sem falla undir lög um opinberar eftirlitsskyldur skv. 1. gr. laga nr. 27/1999 eru Umhverfisstofnun og Mannvirkjastofnun.

          2.      Hver hafa verið árleg framlög ríkissjóðs til hverrar stofnunar árin 2010–2016?
    Í töflunni hér á eftir má finna yfirlit yfir framlög ríkisins til Umhverfisstofnunar og Mannvirkjastofnunar.

Framlög ríkissjóðs 2010–2016 – Eftirlitsstofnanir
Heildarframlag ríkissjóðs
Stofnun 2016 2015 2014

2013

2012 2011 2010
14-211 Umhverfisstofnun 1.025,5 832,6 872,2 948,0 765,2 700,4 592,7
14-320 Mannvirkjastofnun** 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
    ** Ekkert ríkisframlag, stofnunin er fjármögnuð með ríkistekjum. Var Brunamálastofnun ríkisins 2010.



     3.      Hverjar hafa verið árlegar sértekjur hverrar stofnunar árin 2010–2016?
    Í töflunni hér á eftir má finna yfirlit yfir sértekjur Umhverfisstofnunar og Mannvirkjastofnunar.

Sértekjur
Stofnun 2016* 2015 2014

2013

2012 2011 2010
14-211 Umhverfisstofnun** 208,2 321,2 207,8 165,8 116,8 158,2 178,3
14-320 Mannvirkjastofnun*** 3,4 14,8 13,1 12,5 22,5 16,8 6,6
    *Byggt á bókfærðum sértekjum 12. janúar 2017.


    **Bent er á að hverfandi hluti sértekna Umhverfisstofnunar kemur af starfsemi sem byggir á eftirliti.
    ***Var Brunamálastofnun ríkisins 2010.

     4.      Hver var heildarfjöldi starfsmanna hverrar stofnunar í lok árs 2010 og árslok 2016?
    Í töflunni hér á eftir má finna yfirlit yfir fjölda fastráðinna starfsmanna Umhverfisstofnunar og Mannvirkjastofnunar í árslok 2010 og árslok 2016.

Fjöldi starfsmanna
Stofnun 2016 2010
14-211 Umhverfisstofnun* 73** 72**
14-320 Mannvirkjastofnun*** 27 15
    *Til viðbótar koma starfsmenn í landvörslu sem eru eingöngu ráðnir hluta af ári.
    **2016 = 33 karlar og 40 konur. 2010 = 32 karlar og 40 konur.
     5.      Hefur eftirliti eða einstökum verkefnum eftirlitsstofnana verið útvistað? Ef svo er, hverju hefur verið útvistað?
    Umhverfisstofnun hefur gert samning við heilbrigðisnefnd Austurlands um framkvæmd eftirlits á Austurlandi með starfsemi sem getur haft í för með sér mengun. Einnig er í gildi samningur Umhverfisstofnunar við Matvælastofnun um tiltekna þætti eftirlits með fiskeldi. Til upplýsinga skal þess getið að á árinu 2016 var óskað eftir tilboðum og gerður samningur við verkfræðistofu um mælingar og greiningar á losun mengandi efna frá tiltekinni mengandi starfsemi. Fyrirhugað er að óska eftir tilboðum á grundvelli þriggja ára áætlunar í framhaldinu.
    Stór hluti af framkvæmd eftirlits sem er á ábyrgð Mannvirkjastofnunar er falinn skoðunarstofum. Þar er um að ræða rafmagnsöryggiseftirlit, eftirlit með gæðastjórnunarkerfum í byggingariðnaði, öryggiskerfum rafverktaka og markaðseftirlit á ýmsum sviðum (rafföng og byggingarvörur). Öll framkvæmd þessa eftirlits er á vegum faggiltra skoðunarstofa og byggir á grunni útboða í gegnum Ríkiskaup.

     6.      Hefur ráðherra látið kanna kosti þess og galla að útvista starfsemi einstakra eftirlitsstofnana að hluta eða öllu leyti? Telur ráðherra að slík útvistun geti verið skynsamleg?
    Heildstæð könnun á kostum og göllum þess að eftirlitsstofnanir feli öðrum tiltekið eftirlit hefur ekki verið gerð í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu heldur hefur slíkt verið skoðað þegar tilefni hefur verið til við samningu lagafrumvarpa. Heimildir til að fela öðrum eftirlit er að finna víða í þeirri löggjöf sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið og má þar m.a. nefna að samkvæmt lögum nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, veitir Mannvirkjastofnun faggiltum skoðunarstofum starfsleyfi til að að annast tilteknar skoðanir, rannsóknir, eftirlit og úttektir samkvæmt samningi við stjórnvöld, eigendur, rekstraraðila, seljendur, framleiðendur og aðra sem bera tilteknar skyldur á rafmagnssviði. Samkvæmt lögum nr. 95/2016, um timbur og timburvöru, getur Mannvirkjastofnun falið löggiltri skoðunarstofu að annast markaðseftirlit og faggiltri prófunarstofu að prófa og meta hvort timburvara uppfylli ákvæði laganna. Samkvæmt lögum nr. 114/2014, um byggingarvörur, getur Mannvirkjastofnun falið faggiltri skoðunarstofu að annast markaðseftirlit eða faggiltri prófunarstofu að prófa og meta hvort byggingarvara uppfylli ákvæði laganna. Samkvæmt lögum nr. 75/2000 er heimilt að fela skoðunarstofum eldvarnareftirlit og þá getur Mannvirkjastofnun einnig samkvæmt þeim lögum falið faggiltri skoðunarstofu að skoða og meta vöru á markaði, sem hefur áhrif á brunaöryggi. Ákvæði laga nr. 160/2010, um mannvirki, heimilar sveitarstjórn og Mannvirkjastofnun að ákveða að tiltekna þætti eftirlits þeirra með mannvirkjum annist skoðunarstofa með starfsleyfi frá Mannvirkjastofnun. Samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, er heilbrigðisnefndum og Umhverfisstofnun heimilt að fela tiltekna þætti heilbrigðiseftirlits faggiltum skoðunaraðilum. Þá ber Umhverfisstofnun samkvæmt sömu lögum að gera þjónustusamning við Matvælastofnun um að sú stofnun sinni afmörkuðum þáttum eftirlits Umhverfisstofnunar með fiskeldi. Samkvæmt efnalögum, nr. 61/2013, getur Umhverfisstofnun falið heilbrigðisnefndum sveitarfélaga, öðrum stjórnvöldum eða faggiltum skoðunarstofum einstaka þætti eftirlits samkvæmt lögunum. Umhverfisstofnun er einnig heimilt að fela heilbrigðisnefnd eftirlit með starfsleyfishöfum og framkvæmd þvingunarúrræða í umboði stofnunarinnar samkvæmt lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og er henni einnig heimilt samkvæmt þeim lögum að fela tiltekna þætti heilbrigðiseftirlitsins faggiltum skoðunarstofum. Þá er Umhverfisstofnun heimilt að fela heilbrigðisnefnd með samningi tiltekna þætti eftirlitsins sem undir stofnunina heyra samkvæmt lögum nr. 55/2012, um umhverfisábyrgð.
    Í ljósi framangreindrar löggjafar hefur í mörgum tilvikum þótt skynsamlegt að fela skoðunarstofum eða öðrum eftirlitsaðilum tiltekna þætti eftirlits og þá sérstaklega í þeim tilvikum sem um umfangsmikið eftirlit er að ræða eða þegar þörf er á tiltekinni sérhæfingu, en slíkt er matsatriði hverju sinni. Beiting réttar- og þvingunarúrræða og stjórnsýsluviðurlaga þarf þó ætíð að vera í höndum viðkomandi stofnunar eða annarra opinberra eftirlitsaðila.