Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 155  —  96. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um styrki úr menningarsjóðum.

Frá Eygló Harðardóttur.


     1.      Hversu margir og hversu háir styrkir hafa árlega verið veittir úr menningarsjóðum ráðuneytisins síðasta áratuginn og hvernig hafa þeir skipst hlutfallslega milli karla og kvenna?
     2.      Hvernig hefur jafnréttis verið gætt við úthlutun styrkjanna?


Skriflegt svar óskast.