Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 162  —  103. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (fæðispeningar sjómanna).

Flm.: Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Elsa Lára Arnardóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Einar Brynjólfsson, Halldóra Mogensen, Smári McCarthy, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.


1. gr.

    Á eftir orðinu „dagpeninga“ í 1. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna kemur: fæðispeninga sjómanna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Þetta frumvarp var lagt fram á 145. löggjafarþingi (655. mál) af Páli Jóhanni Pálssyni og tveimur þingmönnum öðrum. Málið varð ekki útrætt og er það því endurflutt með eftirfarandi greinargerð óbreyttri:
    „Með frumvarpi þessu er lagt til að heimilt verði að draga kjarasamningsbundna fæðispeninga sjómanna frá tekjum skv. II. kafla laga um tekjuskatt. Í 1. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga um tekjuskatt er kveðið á um að útgjöld að hámarki móttekin fjárhæð dagpeninga megi draga frá tekjum manna og njóta til að mynda flugmenn og flugfreyjur slíks frádráttar. Flutningsmenn telja rök fyrir því að bæta við ákvæðið heimild um að fæðispeninga manna, sem stunda sjómennsku á íslensku skipi eða skipi sem er gert út af íslensku skipafélagi, megi draga frá tekjum enda starfa þeir fjarri heimili sínu líkt og áðurnefndar starfsstéttir.“