Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 184  —  125. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um kjör og stöðu myndlistarmanna.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hvernig telur ráðherra að vænlegast sé að bæta kjör og stöðu myndlistarmanna?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra bæta stöðu myndlistar á Íslandi?
     3.      Hver er afstaða ráðherra til verkefnisins „Við borgum myndlistarmönnum“?