Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.
Þingskjal 198 — 139. mál.
Leiðréttur texti.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um starfsumhverfi bókaútgáfu.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
1. Mun ráðherra beita sér fyrir því að virðisaukaskattur á bókum verði felldur niður?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir einhverjum aðgerðum á vettvangi stjórnvalda til að styðja við innlenda bókaútgáfu?