Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 201  —  142. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um almenningssamgöngur.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.

          1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir úrbótum á lagaumhverfi almenningssamgangna?
          2.      Hefur ráðherra í hyggju að veita landshlutasamtökum einkaleyfi almenningssamgangna?
          3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir að gerður verði skýrari greinarmunur á almenningssamgöngum og farþegaflutningum í atvinnuskyni?