Ferill 51. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 209  —  51. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur um skipun loftslagsráðs.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur verið skipað í loftslagsráð samkvæmt þingsályktun nr. 46/145? Ef svo er ekki, hvenær má þá vænta skipunar ráðsins?

    Loftslagsráð hefur ekki verið skipað. Fyrrverandi ríkisstjórn hafði ekki hafið vinnu varðandi stofnun loftslagsráðs. Ráðherra hyggst hefja undirbúning að skipun loftslagsráðs og fela því verkefni sem miða að því að efla starf í loftslagsmálum í samræmi við ályktun Alþingis.
    Verkefni ráðsins eru mjög víðfeðm samkvæmt þingsályktuninni, en í henni segir að það „hafi það meginhlutverk að gera ráðstafanir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi“. Eins og fyrir liggur er það nú þegar hlutverk stjórnvalda, Ísland hefur skrifað undir alþjóðlegar skuldbindingar og tilskipanir á grundvelli EES-samningsins um það efni og sett lög og áætlanir sem miða að þessu. Það þarf því að gæta þess vel að hlutverk loftslagsráðs sé skýrt, svo ekki verði óvissa eða tvíverknaður innan stjórnkerfisins.
    Hið sama á við um sum einstakra verkefna sem tiltekin eru í þingsályktuninni. Sum þeirra eru nú þegar í vinnslu hjá ráðuneytinu, Umhverfisstofnun, Veðurstofu Íslands og fleiri aðilum. Þetta á við m.a. um eftirfylgni við löggjöf um losun gróðurhúsalofttegunda og að veita upplýsingar um magn, uppruna og þróun útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Þar sem svo háttar til er nauðsynlegt að afmarka hlutverk ráðsins og tryggja að starf þess leiði til ávinnings en ekki tvíverknaðar.
    Mat á kostnaði við störf ráðsins hefur ekki farið fram, en sumir liðirnir fela í sér verkefni sem gætu verið mjög umfangsmikil, svo sem að miðla fræðslu og „veita einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum aðstoð við að minnka losun gróðurhúsalofttegunda“. Gert er ráð fyrir að í ráðinu eigi sæti m.a. fulltrúar sveitarfélaga og ýmissa stofnana, svo ráðið getur mögulega sinnt þessu hlutverki og kannski fleirum með því að aðilar innan ráðsins stilli saman strengi og nýti fé og mannskap sem þeir búa yfir í þessu skyni. Þess ber líka að gæta að alþjóðastarf í loftslagsmálum er mjög umfangsmikið og ekki er ljóst hvaða alþjóðatengsl loftslagsráð á að mynda og sinna sem ekki er þegar sinnt.
    Ráðherra hefur hug á að ráðið taki að sér lykilverkefni við framkvæmd Parísarsamningsins og mótun á stefnu stjórnvalda til framtíðar og að því verði falin umsjón með að móta langtímasýn um minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda fram til 2050 og meta möguleika á því að Ísland nái kolefnishlutleysi á næstu áratugum og hvað þurfi til þess. Með þessu fengi loftslagsráð skýrt afmarkað verkefni sem næði til margra þeirra liða sem tilgreindir eru í þingsályktuninni. Ráðið mun fá fleiri verkefni, en eins og áður segir þarf hlutverk þess að vera skýrt og skarast sem minnst við hlutverk annara, sem nú sinna ýmsum þeim verkefnum sem talin eru upp í þingsályktuninni.